- What: Oculis stock price rises 4.5%
- Impact: Financial market update for investors
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,46% í 1,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Hlutabréfaverð fjórtán félaga hækkaði í viðskiptum dagsins, sex lækkuðu og sjö stóðu í stað. Gengi augnlyfjafyrirtækisins Oculis hækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 4,5% í 28 milljóna króna veltu og stendur félagið nú í 1.7200 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur nú hækkað um 35% frá því það náði sínu allra lægsta gildi í síðasta mánuði. Gengi Skel fjárfestingafélags hækkaði um 2,9% í dag og gengi Íslandsbanka hækkaði um 1,7%. Gengi Alvotech lækkaði um 4,2% í viðskiptum dagsins, Icelandair um 3% og Nova um 1%. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 377 milljónir króna, og Festi, 356 milljónir króna.