- What: Apple becomes most valuable company again
- Impact: Apple surpasses Nvidia in market value
Apple tók í dag fram úr Nvidia sem verðmætasta fyrirtæki heims, sé litið til markaðsvirðis. Útlit er fyrir að þetta verði fyrsti viðskiptadagurinn í meira en ár sem Apple mun sitja í efsta sæti yfir verðmætustu fyrirtæki heims við lokun markaða. Gengi Apple hefur hækkað um tæplega 2% í viðskiptum dagsins og nemur markaðsvirði félagsins nú 4,98 þúsund milljörðum dala. Gengi tæknirisans hefur hækkað um 20% undanfarinn mánuð. Apple mun birta árshlutauppgjör á fimmtudaginn. Hlutabréfaverð Nvidia hefur hins vegar fallið um 5% og stendur markaðsvirði örgjörvaframleiðandans nú í 4,75 þúsund milljörðum dala. Lækkunin á gengi Nvidia er m.a. rakin til áhyggja markaðsaðila af nýlegum samningum félagsins, sem gætu hljóðað upp á meira en 750 milljarða dala, samkvæmt frétt Bloomberg . Á föstudaginn var greint frá gervigreindarverkefni Nvidia og SK Hyniz, sem er metið á yfir 500 milljarða dala. WSJ greindi einnig frá því í dag að félagið eigi í viðræðum um að veita ábyrgð fyrir allt að 250 milljarða dala vegna stórs gervigreindarverkefni OpenAI sem gerir síðarnefnda félaginu kleift að greiða fyrir reikniafl frá 10 GW-verkefni sem dótturfyrirtæki SoftBank vinnur að í Ohio.