Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

At­vinnu­leysi í júní ekki hærra síðan 2021

Read Full Article →

Skráð atvinnuleysi í júní var 4,0%, samanborið við 4,2% í maí og 3,4% í júní 2025. Atvinnuleysi í júní hefur ekki verið meira frá árinu 2021 en séu árin 2020-2021 tekin út fyrir sviga vegna áhrifa Covid-faraldursins þá var atvinnuleysi í júní síðast meira árið 2012. Í mánaðarlegri skýrslu Vinnumálastofnunar er spáð því að atvinnuleysi standi í stað milli mánaða og verði á bilinu 4,3-4,4%. Að meðaltali voru 8.513 atvinnulausir í júní. Meðalfjöldi atvinnulausra fækkaði um 318 manns milli mánaða. Alls höfðu 1.747 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok júní. Í júní 2025 var fjöldi þeirra hins vegar 1.536 og nemur fjölgunin 230 á milli ára. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í júní eða 5,8%. Atvinnuleysi var 4,5% á höfuðborgarsvæðinu í júní mánuði og 3,3% að meðaltali á landsbyggðinni. Atvinnulausum fækkaði mest milli mánaða í ferðaþjónustu, eða um 77, og í gistiþjónustu þar sem fækkaði um 45. Mest fjölgun var í opinberri þjónustu og skyldum greinum þar sem fjölgaði um 59. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi hafi verið 8,1% í júní samanborið við 2,5% hjá Íslendingum. Alls komu inn 219 ný störf sem auglýst voru í vinnumiðlun Vinnumálastofnunar í júní.

Share this article