Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Atvinnuleysi 5% í júní – aukning frá því í fyrra

Read Full Article →

Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi mældist 5% í júní, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Fjöldi atvinnulausra á aldrinum 16 til 74 ára var um 9200 en 11.500 samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum. Atvinnuleysi jókst um 1,7 prósentustig samanborið við sama mánuð á síðasta ári. Hlutfall starfandi lækkaði um 5,4 prósentustig og atvinnuþátttaka minnkaði um 4,1 prósentustig. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi minnkaði um 0,6 prósentustig á milli maí og júní 2026. Atvinnuþátttaka dróst saman um 2,4 prósentustig og hlutfall starfandi lækkaði um 1,9 prósentustig. Óárstíðarleiðrétt atvinnuleysi var 3,9%. Hlutfall starfandi var 77,9% í júní sem samsvarar tæplega 228.700 einstaklingum. Atvinnuþátttaka var 81% sem þýðir að um 237.900 manns voru á vinnumarkaði. Árstíðaleiðrétt var atvinnuþátttaka 74,4% í júní og atvinnuþátttaka 78,4 prósent. Hlutfall starfandi var 77,9%, sem samsvarar tæplega 228.700 einstaklingum, og atvinnuþátttaka var 81% eða um 237.900 manns á vinnumarkaði. Vinnumálastofnun skráði 4% atvinnuleysi 10. júlí.

Share this article