Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Eldsneytiskostnaður étur upp hagnað Delta

Read Full Article →

Hækkandi eldsneytiskostnaður er farinn að hafa veruleg áhrif á afkomu flugfélaga eftir að óstöðugleiki á alþjóðlegum olíumörkuðum jók kostnað við rekstur. Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines er meðal fyrstu stóru félaganna til að sýna áhrifin í uppgjöri sínu fyrir annan ársfjórðung. Frá þessu er greint í Financial Times. Tekjur Delta jukust um 14% milli ára og námu 19,8 milljörðum dala, eða 2,49 trilljónum íslenskra króna, á tímabilinu frá apríl til júní. Hagnaður dróst hins vegar saman um 25% og nam 1,6 milljörðum dala, eða um 201 milljarði króna. Helsta skýringin var metkostnaður vegna eldsneytis, sem jókst um 77% frá sama tímabili í fyrra, og nam á fjórðungnum um 4,4 milljörðum dala, sem samsvarar um 552 milljörðum króna. Sjá einnig Aukinn elds­neytis­kostnaður hleypur á milljörðum Flugfélagið hefur brugðist við með því að leggja á sérstakt eldsneytisálag draga úr framboði. Delta segir að aðgerðirnar hafi vegið upp á móti um 60% af auknum eldsneytiskostnaði á fjórðungnum. Þrátt fyrir kostnaðarþrýsting hefur eftirspurn eftir flugi haldist sterk. Sérstaklega hefur sala á dýrari fargjöldum reynst mikilvæg fyrir afkomu Delta. Tekjur af farmiðum á „premimum economy“ jukust um 17% milli ára og tekjur tengdar vildarkerfi félagsins jukust um 19%. Delta hefur staðfest markmið sitt um um 20% aukinn hagnað á árinu og gerir ráð fyrir áframhaldandi sterkum ferðavilja yfir sumarmánuðina. Félagið gerir jafnframt ráð fyrir lægra eldsneytisverði á yfirstandandi fjórðungi, þrátt fyrir að óvissa ríki enn vegna áframhaldandi spennu í Mið-Austurlöndum.

Share this article