Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Icelandair lækkaði um rúm 2%

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Icelandair lækkaði um rúm 2% í 55 milljóna króna við­skiptum í dag. Dagslokagengi Icelandair var 0,72 krónur á hlut og hefur ekki verið lægra í meira en mánuð. Flug­félagið birti árs­hluta­upp­gjör eftir lokun markaða í gær en tap félagsins var tölu­vert meira en greiningaraðilar höfðu spáð. Icelandair tapaði 32,3 milljónum dala, jafn­virði rúmra 4 milljarða króna, á öðrum árs­fjórðungi. Á sama tíma í fyrra hagnaðist félagið um 12,9 milljónir dala. Tekjur Icelandair jukust engu að síður um 7% milli ára og námu 496,2 milljónum dala, jafn­virði um 61,4 milljarða króna. Þetta eru mestu tekjur sem félagið hefur skilað á einum árs­fjórðungi. Mikil hækkun elds­neytis­kostnaðar hafði mest áhrif á af­komuna. Kostnaður vegna elds­neytis jókst um 72,5 milljónir dala milli ára áður en tekið er til­lit til elds­neytis­varna. Að teknu til­liti til hagnaðar af elds­neytis­vörnum nam kostnaðar­aukningin 41 milljón dala, eða um 5,1 milljarði króna. Heildar­elds­neytis­kostnaður nam 136,5 milljónum dala og jókst um 43% milli ára þrátt fyrir að fram­leiðsla félagsins hefði dregist saman um 1,3%. Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair, segir af­komuna hafa verið í samræmi við spá félagsins þrátt fyrir krefjandi rekstrar­um­hverfi. „Rekstrar­um­hverfið var krefjandi á öðrum árs­fjórðungi vegna mikillar hækkunar elds­neytis­verðs. Við náðum samt sem áður góðum árangri á mörgum sviðum og var af­koman í takt við af­komu­spá okkar fyrir fjórðunginn. Við skiluðum met­tekjum og ef hækkun elds­neytis­kostnaðar er tekin út fyrir sviga náðum við undir­liggjandi EBIT rekstrar­bata á milli ára.“ Ný stjórn hærra gengi Hluta­bréfa­verð Amaroq Minerals hækkaði um rúm 3% í 90 milljóna króna við­skiptum í dag eftir að félagið greindi frá breytingum á stjórn fyrir opnun markaða í morgun. Líkt og Við­skipta­blaðið greindi frá í morgun mun Sigur­björn Þor­kels­son taka við stjórnar­for­mennsku hjá Amaroq Minerals þegar hluta­bréf félagsins verða tekin til við­skipta á aðal­markaði Kaup­hallarinnar í London. Sjá einnig Sigur­björn tekur við stjórnar­for­mennsku hjá Amaroq Graham Stewart, sem hefur verið stjórnar­for­maður Amaroq síðustu sjö ár, lætur þá af for­mennsku en verður áfram í stjórn félagsins sem óháður stjórnar­maður. Félagið segir það tryggja sam­fellu og áfram­haldandi aðkomu hans að stefnumótun og þróun Amaroq. Sam­hliða breytingunum bætast þrír nýir óháðir stjórnar­menn við stjórn Amaroq. Það eru Annette Brønd­holt, Jorunn Johanne Sætre og Teitur Poul­sen. Lítil velta hjá öllum nema bönkum Lang­mesta veltan var með bréf Arion banka og Ís­lands­banka í dag. Saman­lögð velta með bréf bankanna var yfir 1,1 milljarður króna. Gengi beggja banka hækkaði, en hækkunin var undir 1% í báðum til­vikum. Heildar­velta á hluta­bréfa­markaði nam 2 milljörðum króna og hækkaði úr­vals­vísi­talan um 0,24%.

Share this article