Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Rekstrartekjur Faxaflóahafna tæpir 7 milljarðar

Read Full Article →

Rekstrartekjur Faxaflóahafna á árinu 2025 námu 6.978 milljónum króna og jukust úr 6.463 milljónum á árinu 2024 sem er 8% aukning. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir nam 2.486 milljónum króna, samanborið við 2.222 milljónir króna árið áður, sem jafngildir tæplega 12% aukningu. Bæði rekstrartekjur og EBITDA voru umfram áætlun og þær hæstu frá stofnun Faxaflóahafna. Stjórn félagsins lagði til arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1.639 milljónir króna. Alls voru 1.398 skipakomur til hafna Faxaflóahafna á árinu. 330.311 farþegar komu eða fóru með skemmtiferðaskipum um hafnirnar, samanborið við 321.966 farþega árið 2024, og hafa aldrei verið fleiri. „Sérstaklega fjölgaði farþegum sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni á Íslandi og undirstrikar það vaxandi mikilvægi Reykjavíkur sem áfangastaðar fyrir farþegaskipti. Um hafnarsvæðin fóru jafnframt 420.376 TEU gámaeiningar, sem staðfestir áfram mikilvægt hlutverk Faxaflóahafna í vöruflutningum og tengingum Íslands við umheiminn,“ segir meðal annars í árskýrslunni sem lesa má hér .

Share this article