Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Mýflug hættir rekstri

Read Full Article →

Mýflug hf. hagnaðist um 360 milljónir króna árið 2025, samanborið við 19 milljóna króna hagnað árið áður. Rekstrartekjur námu 688 milljónum króna. Á árinu hætti félagið flugrekstri og seldi flugvélar, fasteign og aðrar eignir til Norlandair og hafði salan veruleg áhrif á afkomuna. Sjá einnig 400 milljóna hlutafjáraukning Félagið hyggst selja eftirstandandi eignir á yfirstandandi ári. Eignir félagsins námu 569 milljónum króna í árslok og eigið fé 402 milljónum króna. Stjórn leggur til að greiddur verði 150 milljóna króna arður. Leifur Hallgrímsson er framkvæmdastjóri félagsins. Lykiltölur / Mýflug hf. 2025 2024 Tekjur 688 722 Eigið fé 402 592 Eignir 569 1.097 Afkoma 360 19 Í milljónum króna. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 12. ágúst.

Share this article