Spánn vann Belgíu 2-1 í 8-liða úrslitum HM karla í fótbolta. Spánverjar komust yfir eftir 30 mínútna leik þegar Fabian Ruiz fylgdi eftir skoti Dani Olmo. Charles de Ketelaere var fyrsti leikmaðurinn sem náði að skora fram hjá Unai Simon á mótinu. Hann stangaði inn fyrirgjöf Castagne á 41. mínútu. Spánverjar höfðu ekki fengið mark á sig á HM þar til í dag. Markvörðurinn Unai Simon á HM metið yfir flestar mínútur án þess að fá á sig mark, 650 alls. Mínúturnar byrjuðu að telja frá HM 2022. Varamaðurinn Merino skoraði sigurmarkið annan leikinn í röð. Hann fylgdi á eftir skoti Cubarsi fyrir utan teig. Senne Lammens gerði sig sekan um slæm mistökþ Merino var manna skarpastur og kom boltanum í netið úr markteignum. Skömmu áður hafði Courtois farið meiddur út af og Lammes kom í hans stað í markið.