Spánn og Belgía mætast í dag í 8-liða úrslitum HM karla í fótbolta í Los Angeles. Í undanúrslitum bíða Frakkar, sem unnu Marokkó í gær. Leikurinn hefst klukkan 19:00 á RÚV. Spánverjar hafa enn ekki fengið á sig mark á mótinu, en liðið sló út Austurríki og Portúgal á leið sinni í 8-liða úrslit. Belgar náðu ótrúlegri endurkomu gegn Senegal í 32-liða úrslitum og fóru svo nokkuð létt með Bandaríkin í 16-liða úrslitum. Dagskrá dagsins 18:30 - Stofan - RÚV 18:50 - útsending frá leik hefst - Spánn - Belgía - RÚV 21:05 - HM kvöld - RÚV