Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.7.2026 | 8:04 Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Sigga Beinteins á sviðinu í gærkvöld. Mynd/Mummi Lú Setja bókamerki Tónleikagestir skemmtu sér konunglega á Kótelettunni á Selfossi í gærkvöldi þegar fyrra stóra tónleikakvöld hátíðarinnar fór fram. Í tilkynningu segir að þau Eiríkur Hauksson og Sigga Beinteins hafi stolið senunni en þau komu fram með Stuðlabandinu. Auk þeirra komu fram Aron Can, GDRN, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel, Stuðlabandið, Retro Stefson, Inspector Spacetime, The Curly FM Show, Tónhyllur Akademía, ISSI, Elvar, DJ Gugga og 12:00. Gaman að sjá svona mikla gleði „Það er ótrúlega gaman að sjá svona mikla gleði á svæðinu. Stemningin í gærkvöldi var nákvæmlega það sem við vonuðumst eftir. Það er tilhlökkun hjá okkur fyrir deginum í dag og svo lokum við þessu á Music Festivalinu í kvöld,“ er haft eftir Einari Björnssyni, stofnanda Kótelettunnar, í tilkynningunni. Í dag nær BBQ Festival-hluti Kótelettunnar síðan hámarki í Sigtúnsgarðinum þar sem boðið verður upp á glæsilega og ókeypis fjölskylduhátíð frá klukkan 13:00 til 16:00. Auk fjölbreyttrar sviðsdagskrár verður þar að finna Stóru grillsýningu Kótelettunnar, þar sem helstu framleiðendur og söluaðilar grilla, grilltækja og fylgihluta sýna nýjustu vörurnar og gefa gestum tækifæri til að skoða það allra nýjasta í grillheiminum. Eiríkur Hauksson á sviðinu. Mynd/Mummi Lú Jafnframt verður hið vinsæla Góðgerðagrill Kótelettunnar, þar sem landsþekktir einstaklingar, kokkar og gestir taka sér stöðu við grillið og grilla til styrktar góðu málefni. Þar blandast saman góð stemning, grillilmur og kærleikur á einstakan hátt. Á sviðinu verða meðal annars VÆB, Emmsjé Gauti, Lína Langsokkur, Ívar og Hákon, Freyja Karamellufluga, Guðjón Smári og Jóna Margrét ásamt Hvolpasveitinni. Yngstu gestirnir geta auk þess notið UK Tívolís, Sprell Tívolís, Veltibílsins, Pepsi-foosball-vallar og fjölbreyttrar afþreyingar. Aðgangur að fjölskylduhátíðinni er ókeypis fyrir alla. Í kvöld koma fram þau Páll Óskar Hjálmtýrsson, FM95BLÖ, Birnir, Emmsjé Gauti, Klara Einars, Papar, Doctor Victor, Selma Björns, Sverrir Bergmann og fjölmargir fleiri. Gríðarleg stemning var á tóneikum Kótelettunnar í gærkvöld. mynd/Mummi Lú Tónleikagestir skemmtu sér konunglega á Kótelettunni. Mynd/Mummi Lú Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spurningin kom Ingu rosalega á óvart Frakklandseldar tvöfalt skæðari en í fyrra Innflutningur háður leyfi lögreglu Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar „Það er erfitt að sjá þetta“ Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu

Share this article