Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tekjuhæsta tónlistarfólkið: Sigga Beinteins efst

Read Full Article →

Sigríður Beinteinsdóttir söngkona trónir á toppi lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæsta tónlistarfólk landsins. Hún var með 2,1 milljón króna í útsvarsskyldar tekjur á mánuði á síðasta ári. Sigríður sat í fjórða sæti listans í fyrra, þá með tæplega 1,4 milljónir króna á mánuði. Á eftir Sigríði kemur Stefán Sigurður Stefánsson tónskáld og skólastjóri, með ríflega 1,6 milljónir króna á mánuði í tekjur. Stefán hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi, ýmist sem tónskáld, útsetjari og saxófónleikari. Í þriðja sæti listans situr Jökull Júlíusson, söngvari hljómsveitarinnar Kaleo, með ríflega 1,5 milljónir króna í tekjur miðað við greitt útsvar. Jökull vermdi toppsæti listans í fyrra, þá með 2,4 milljónir króna á mánuði. Kaleo á þó áfram stóran hlut í toppi listans. Hljómsveitarfélagar Jökuls, þeir Rubin Pollock gítarleikari og Davíð Antonsson trommuleikari, skipa fjórða og fimmta sæti listans í ár, með rúmlega 1,4 milljónir og ríflega 1,3 milljónir króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Meðal annarra þekktra tónlistarmanna á listanum eru Karl Sigurðsson, tónlistarmaður og tölvunarfræðingur sem gjarnan er kenndur við hljómsveitina Baggalút. Hann var með ríflega 1,3 milljónir króna í útsvarsskyldar tekjur á mánuði. Þá var saxófónleikarinn Sigurður Hjörtur Flosason jafnframt með 1,3 milljónir króna á mánuði miðað við greitt útsvar. Á listanum voru einnig Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, og Una Torfadóttir söngkona, en hvort um sig voru þau með ríflega 1,2 milljónir króna á mánuði í útsvarsskyldar tekjur. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.

Share this article