Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Daði í toppmálum

Read Full Article →

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem sjá að glasið er hálffullt. Þannig sagði hann efnislega í Silfrinu á mánudagskvöld að efnahagslífið væri í toppmálum, fyrir utan mikla verðbólgu og mikið atvinnuleysi. Og til að bæta um betur í bjartsýninni lýsti hann því yfir í þættinum að það væri ekkert vafamál að ríkissjóður yrði rekinn án halla á næsta ári. *** Týr veltir fyrir sér hvar mörk bjartsýni og skorts á raunveruleikatengingu liggja. Það er að minnsta kosti afar sérstakt að halda því fram að allt sé í toppmálum í hagkerfinu þrátt fyrir mikla verðbólgu og vaxandi atvinnuleysi. Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, benti þannig á opnum fundi með efnahags- og viðskiptanefnd á þriðjudag á sláandi stöðu á vinnumarkaði. Varaseðlabankastjórinn benti nefndarmönnum á að eftirspurn eftir vinnuafli væri ákaflega lítil og þyrfti í raun að leita til heimsfaraldursins eða eftirmála fjármálakreppunnar til að finna sambærilegar tölur. *** Þetta boðar ekki gott. Hvorki fyrir útgjöld ríkissjóðs né þróun skatttekna. Enda gerir Seðlabankinn ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs bæði í fyrra og í ár verði lakari en í áætlun fjárlagafrumvarps Daða Más. Tekur Seðlabankinn þar með undir spár þeirra sem telja að fjárlagahallinn í ár verði 50–60 milljarðar en ekki 30 milljarðar eins og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Þetta er ekki síst athyglisvert í ljósi þess að Seðlabankinn metur það svo í síðustu Peningamálum að hagvaxtarhorfur hafi batnað frá því fyrr í vetur og framleiðsluslakinn sé minni en áður var talið. Afhjúpar það veikar forsendur fjárlagafrumvarpsins. Einnig er rétt að halda því til haga að hagvaxtar­spá Seðlabankans er enn sem komið er bjartsýnni en til að mynda spár bankanna. Þannig gerir Íslandsbanki einungis ráð fyrir 1% hagvexti en Seðlabankinn gerir ráð fyrir 2%. Íslandsbanki hafði spáð litlum sem engum hagvexti áður en ljóst var að vetrarvertíðin á loðnu yrði tiltölulega kröftug. Eins og staðan á vinnumarkaði bendir til, og Þórarinn vísaði til, þarf ekki mikið út af að bregða til að ástandið versni hratt. Það væri ágætt ef ráðamenn gerðu sér grein fyrir því. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Pistillinn birtist fyrst í blaðinu sem kom út 18. febrúar 2026.

Share this article