Týr hefur lengi haft áhyggjur af því hversu aftengdir álitsgjafar og fjölmiðlafólk eru verðmætasköpun í landinu. Þeir gera sér þó í fæstum tilvikum grein fyrir því hversu aftengdir þeir eru. Komið hefur á daginn að nánast hver einasti Íslendingur að Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf., og Vilhjálmi Birgissyni, formanni Starfsgreinasambandsins, undanskildum er sérfróður um þann jaðarmarkað sem viðskipti með kjöt og mjöl af langreyðum hlýtur að vera. Það er að segja að fjöldi Íslendinga skilur ekki af hverju Kristján gerir út á þessar veiðar og hvers vegna Vilhjálmi er mikið í mun að varðveita fjölda vel launaðra starfa yfir sumartímann á áhrifasvæði verkalýðsleiðtogans á Vesturlandi. *** Kristján var til viðtals í fréttatíma Sýnar á mánudag. Tilefnið var ásakanir hans um að forstjóri MAST hefði reynt að koma höggi á fyrirtækið og starfsmenn þess með því að deila staðsetningu hvalveiðiskipa í eftirlitsskýrslum. Hann segist ekki hafa tekið á umdeildu athæfi starfsmanns sem lék sér að lim hvalskrokks og bendir hvalaskoðunarfólki á að horfa í hina áttina þegar það nálgast skip við veiðar. Sunna Sæmundsdóttir, sú ágæta fréttakona, tók viðtalið og við það er ekkert að athuga í sjálfu sér. **** En það voru lokaorð viðtalsins sem vöktu mikla athygli. „Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? Myndir þú vilja halda hvalveiðum áfram?“ Kristján sagði eðli málsins samkvæmt vilja það enda væru efnahagslegar forsendur fyrir því: „Já, það er ekkert að því. Stofninn er sterkur og ég meina, viltu halda áfram þorskveiðum hérna á Íslandi? Ég lít ekkert á þetta öðruvísi.“ En spurningin er eigi að síður sérstök. Myndi fréttakonan spyrja Benedikt Gíslason bankastjóra Arion banka í lok viðtals hvort hann sæi fyrir sér að koma að lánveitingum í hlutverki sínu sem bankastjóri? Yrði Finnur Oddsson forstjóri Haga einhvern tíma spurður hvort það væri í framtíðarplönum hans að halda áfram að selja Íslendingum dagvöru? Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 8. júlíu 2026.