Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Soðið brauð með hangikjöti vinsælt

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.7.2026 | 18:55 Soðið brauð með hangikjöti vinsælt Elínborg „Ellý“ Birna Benediktsdóttir, Elvar Reykjalín (t.v.) og Jóhann Guðni Reynisson í nýreistum veitingaskála við fjöruböðin. mbl.is/Þorgeir Baldursson Flóki Larsen [email protected] Setja bókamerki Óviðjafnanlegt útsýni er yfir Eyjafjörðinn úr nýjum veitingaskála við Fjöruböðin á Hauganesi. Það segir Jóhann Guðni Reynisson, einn eigenda þeirra, í samtali við Morgunblaðið. Kaffihúsið er nýjasta viðbót starfseminnar og hóteláform eru í farvatninu að sögn Jóhanns. „Við erum með smurbrauð, bollaköku og svo vöfflur með sultu og rjóma sem hafa algjörlega slegið í gegn. Þær og soðið brauð frá Elvari Reykjalín með hangikjöti eru aðalréttirnir á staðnum.“ Aðspurður segir Jóhann erlenda ferðamenn vera mjög hrifna af þessum sígilda íslenska mat sem þeir gæði sér oft á með einum köldum eftir vistina ofan í pottunum. Jóhann segir erlenda ferðamenn telja um helming af gestum baðanna á móti Íslendingum sem séu duglegir að koma. Til dæmis nefnir hann að gaman hafi verið að fá fjölda fótboltastráka í heimsókn um síðustu helgi en þá fór N1-mótið fram á Akureyri. „Þeir voru allir til þvílíkrar fyrirmyndar svo að það var sérstaklega tekið eftir því,“ segir hann. Stefna að byggingu hótels Hóteláform eru í skipulagsferli um þessar mundir að sögn Jóhanns. „Áformin gera ráð fyrir bæði bústöðum, hóteli og svo einhverri endurnýjun á þessum böðum. Það var svolítið gaman að heyra hve margir vildu halda þessu „væbi“ hér,“ segir Jóhann og tekur fram að óhætt sé að nota orðið eftir að samnefnd hljómsveit keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision. Stemningin á Hauganesi segir hann að sé sveitó og hugguleg, eins og hann orðar það, sem heilli gestina. Fjöruböðin á Hauganesi laða til sín íslenska jafnt sem erlenda ferðamenn. Jóhann segir staðinn í Eyjafirði vera þann heitasta á Íslandi. mbl.is/Þorgeir Baldursson Það geri sandfjaran líka sem sjá má á myndinni til hliðar. Jóhann lýsir henni sem aðgrunnri og dúnmjúkri og segir einn af hápunktum heimsóknarinnar fyrir gestina vera að gera sér ferð yfir hana og að steininum sem stendur upp úr sjónum. Hann heiti því viðeigandi nafni, Hafsteinn. „Heitasti staðurinn á Íslandi“ Jóhann hvetur fólk til þess að gera sér ferð norður í Eyjafjörð og prófa fjöruböðin. Hann og hinir eigendurnir séu með stórt og vel hirt tjaldsvæði beint fyrir ofan baðlónin. „Og á Hauganesi er að auki Baccalá Bar sem er vinsæll veitingastaður. Hér er líka frábær hvalaskoðun. Það er rosalega margt sem hægt er að sækja á Hauganes. Þetta er heitasti staðurinn á Íslandi í dag,“ segir Jóhann Guðni að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Níu fá 125 þúsund krónur Hættir eftir aðeins 18 daga í starfi Soðið brauð með hangikjöti vinsælt Góðar fréttir fyrir England Myndir: Seyðisfjörður seiðandi fyrir góðviðrisferðalanga Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsókn á upptökum brunans lokið: Meta tjónið „Það er erfitt að sjá þetta“ Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Ísland græði ekkert á aðild að ESB Sundlaugagarður í Laugardalnum Sex fá 75,5 milljónir Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Níu fá 125 þúsund krónur Hættir eftir aðeins 18 daga í starfi Soðið brauð með hangikjöti vinsælt Góðar fréttir fyrir England Myndir: Seyðisfjörður seiðandi fyrir góðviðrisferðalanga Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn „Það er erfitt að sjá þetta“ Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Mest lesið Í gær Í vikunni Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Ísland græði ekkert á aðild að ESB Sundlaugagarður í Laugardalnum Sex fá 75,5 milljónir Gular viðvaranir vegna hvassviðris MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu

Share this article