Innlent | Morgunblaðið | 28.8.2026 | 12:00 Aðsend grein: Stjórnviska að fornu og nýju Birgir Þórarinsson mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Íslendingasögurnar hafa að geyma djúpa visku um mannlegt eðli, vald og samfélag. Þær eru ekki bara frásagnir af bardögum og ættardeilum, heldur geyma þær dýrmæta speki, siðfræði og stjórnvisku. Af þeim má draga þann lærdóm að mikilvægt er að sýna varúð áður en stórar ákvarðanir eru teknar. Í þeim er einnig að finna forspár og viðvaranir sem móta gang sögunnar. Draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur eru meðal áhrifamestu frásagna í Laxdælu. Draumarnir móta örlög hennar og persónu. Guðrúnu dreymir dýrmæta skartgripi, silfurhring og gullhjálm. Á yfirborðinu voru þetta glæsilegir og heillandi hlutir en draumarnir boðuðu gæfuleysi og ófyrirséðar hættur undir gljáandi yfirborðinu. Á heimaslóð Jóns Sigurðssonar forseta Nýlega kom ég á Hrafnseyri við Arnarfjörð í fallegu veðri. Það var hollt og gott að vitja fæðingarstaðar Jóns Sigurðssonar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Á Hrafnseyri tók ég eldri mann tali. Hann sagði mér frá draumi sem hann hafði dreymt. Hann taldi drauminn vera merki um ófyrirséða hættu. „Ég gekk meðfram snjóbreiðu og horfði yfir hana. Hún var heillandi, svo hvít og falleg í sólskininu. Það var kyrrt og hljótt. Ég sló léttilega með göngustafnum í snjóinn. Í sömu andrá kom stór dæld í snjóbreiðuna eins og hún sigi niður. Ég sló stafnum aftur niður. Skipti þá engum togum að snjóbreiðan fallega hvarf ofan í heljarstóra og hættulega gryfju sem var undir yfirborðinu. Ég var skelkaður en mig sakaði ekki. Hugur minn hvarf strax til þeirra sem gætu hafa gengið yfir snjóbreiðuna í þeirri trú að yfirborðið væri heilt og traust og ekki vitað af hættunni fyrr en um seinan.“ Forspá um gæfuleysi og ófyrirséðar hættur Frásögnin á Hrafnseyri af draumnum vakti mig til umhugsunar nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB. Ef til vill var það rétt að draumurinn væri forspá og viðvörun um gæfuleysi og ófyrirséðar hættur, eins og draumar Guðrúnar Ósvífursdóttur. Þeir sem líta undir yfirborð ESB átta sig á að stóru fyrirheitin um ódýrari kaffibolla og pítsusneiðar skyggja á alvarlegar staðreyndir. Viðræður við Evrópusambandið eru ekki áhættulausar. Þær eru skref inn á svæði þar sem hagsmunir og sjálfstæði þjóðarinnar eru í húfi. Ísland er sjálfstætt og farsælt ríki. Það er afrek sem gerðist ekki á einni nóttu. Að brjótast úr viðjum fátæktar til velmegunar kostaði þrotlausa baráttu þjóðarinnar. Efnahagslegur styrkur okkar byggist á auðlindum okkar. Ekki síst auðugum fiskimiðum og hreinni orku. Áhugi Evrópusambandsins á að stækka áhrifasvæði sitt er augljós, að ná aðgangi að þessum dýrmætu auðlindum. Endi vegferð ríkisstjórnarinnar með inngöngu í ESB myndi Ísland þurfa að greiða árlega umtalsverðar fjárhæðir í sjóði sambandsins. Það fé færi ekki í vegina eða heilbrigðiskerfið hér á landi. Innantóm loforð og yfirborðskennd fyrirheit áhangenda ESB Við getum ekki treyst á yfirborðskennd fyrirheit. Áður en við stígum skref sem gæti breytt umgjörð samfélags okkar, efnahag og auðlindanýtingu til frambúðar verður hver og einn kjósandi að líta fram hjá sléttu yfirborðinu, sléttu snjóbreiðunni, og rannsaka hvað býr undir niðri. Við verðum að tryggja að við föllum ekki í gryfju sem við bjuggum til sjálf. Sú mynd sem margir heillast af í dag af Evrópusambandinu á sér hliðstæðu í Laxdælu. Okkur eru sýnd loforð um lægri vexti og minni verðbólgu. Staðreyndin er sú að við þurfum sjálf að ná tökum á verðbólgu og vöxtum, það gerir enginn fyrir okkur. Eins og í draumi Guðrúnar er hætt við því að það sem virðist dýrmætt við fyrstu sýn geti reynst dýrkeypt falssýn þegar á reynir. Fylgjum fordæmi forfeðranna. Gætum varúðar áður en við tökum stóra ákvörðun. Segjum nei. Birgir Þórarinsson er fv. þingmaður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Sektuð um tugi milljóna vegna uppþots stuðningsmanna Aðsend grein: Stjórnviska að fornu og nýju Tveir látnir úr malaríu eftir moskítóbit á flugvelli Svíar senda hersveitir til Finnlands Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Aðlögun, afkoma og markaðir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þung staða á markaðnum Þúsund íslenska skriffinna þyrfti „Nei og aftur nei“ Fóru snemma úr vinnu fyrir mannskætt slys Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brotist inn á heimili í Árbænum Þung staða á markaðnum Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Góð stemning á Austurvelli Myndir: Merkingar rifnar niður á Húsavík Þúsund íslenska skriffinna þyrfti Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Nýjast á mbl.is » Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Sektuð um tugi milljóna vegna uppþots stuðningsmanna Aðsend grein: Stjórnviska að fornu og nýju Tveir látnir úr malaríu eftir moskítóbit á flugvelli Svíar senda hersveitir til Finnlands Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Aðlögun, afkoma og markaðir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti“ Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð „Nei og aftur nei“ Þúsund íslenska skriffinna þyrfti Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brotist inn á heimili í Árbænum Þung staða á markaðnum Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Góð stemning á Austurvelli Myndir: Merkingar rifnar niður á Húsavík Þúsund íslenska skriffinna þyrfti Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Loka