Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skeiðað upp í vindinn

Read Full Article →

Riðið var til úrslita í öllum flokkum gæðingakeppninnar í dag, byrjað á B-flokki ungmenna þar sem þeir Grettir frá Hólum og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal unnu með 8,87 og Guðmar sat einnig Kalsa frá Þúfum í A-flokki ungmenna og vann þar líka með einkunnina 8,71. Í unglingaflokki var það Gabríel Liljendal Friðfinnsson sem vann á Ólsen frá Egilsá, einkunnin 8,80 og í barnaflokki varði Viktoría Huld Hannesdóttir titil sinn á Þin frá Enni með 9,06. Í fyrsta sinn var boðið upp á B-flokk áhugamanna þar sem Hannes Sigurjónsson sýndi Heiður frá Eystra-Fróðholti til sigurs með einkunnina 8,67. Hápunktar dagsins voru svo úrslit í A og B flokki gæðinga. B-flokkinn vann Kór frá Skálakoti, sýndur af Jakobi Svavari Sigurðssyni með einkunn upp á 9,19 en A-flokkinn vann Sindri frá Hjarðartúni, sýndur af Hans Þór Hilmarssyni eftir harða keppni við Ask frá Holtsmúla 1 og Ásmund Erni Snorrason, en skeiðsprettirnir gerðu gæfumuninn og tryggðu Sindra og Hans Þór gullið. Bálhvasst var þegar úrslitin fóru fram og þurfu hestarnir að skeiða upp í vindinn. Aðspurður segir Hans Þór það hafa verið sérstakt að leggja á móti svo sterkum vindi og erfitt að átta sig á hraðanum, en allt hafi þetta gengið upp að lokum og draumurinn ræst. Félag tamningamanna veitti Brynju Kristinsdóttur reiðmennskuverðlaun og afhenti FT fjöðrina fyrir fallega reiðmennsku tveimur knöpum, þeim Ásmundi Erni Snorrasyni fyrir sýningar sínar á Hlökk frá Strandarhöfði, en þau settu einkunnamet í tölti og Elinu Holst fyrir sýningu sína á Hugsýn frá Ketilsstöðum á kynbótabrautinni. Gregersen styttuna, sem veitt er í minningu Ragnars Gregersen, hlaut Jóhanna Margrét Snorradóttir en hún er veitt knapa sem þykir skara fram úr í snyrtimennsku og prúðmannlegri framkomu með vel hirtan hest. Mótið tókst á heildina afskaplega vel og var sannkallað metamót þar sem einkunnamet voru sett bæði á keppnisvellinum og kynbótabrautinni. Sjá má öll úrslit keppnisgreina í smáforritinu HorseDay og niðurstöður kynbótadóma er að finna í gagnagrunninum WorldFeng.

Share this article