Innlent | Morgunblaðið | 7.7.2026 | 12:55 Nótt frá Tjaldhólum fékk 10 fyrir tölt Það er fas og glæsileiki sem fangar athyglina þegar þeir Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar mæta í brautina. Ljósmynd/Freydís Bergsdóttir Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Kobbi og Kórinn leiða B-flokkinn Hrefna frá Hemlu efst í flokki 4 vetra hryssna Vikoría og Þinur leiða barnaflokkinn Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson eru efstir í B-flokki gæðinga á landsmótinu með einkunnina 9,15. Í öðru sæti eru Steinn frá Stíghúsi og Þorgeir Ólafsson með 8,96 í einkunn og í þriðja sæti Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 með 8,82 í einkunn. Í flokki fimm vetra hryssna er Glíma frá Grund II efst með 8,60 í aðaleinkunn. Hún hlaut 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Glíma er undan Glúmi frá Dallandi og Grund frá Grund II. Sýnandi var Daníel Jónsson en eigendur eru Ólöf Stefánsdóttir og Örn Stefánsson sem er jafnframt ræktandi. Í öðru sæti er Huld frá Fákshólum undan Viðari frá Skör og Telmu frá Steinnesi. Hún hlaut 8,51 í aðaleinkunn. Sýnandi var Helga Una Björnsdóttir en hún er jafnframt eigandi og ræktandi. Fljóð frá Syðri-Gegnishólum er í þriðja sæti með 8,49 í aðaleinkunn. Hlaut hún 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Sýnandi var Bergur Jónsson en eigandi og ræktandi er Olil Amble. Fljóð er undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Huldumey frá Syðri-Gegnishólum. Hugsýn frá Ketilsstöðum er efst í flokki sex vetra kynbótahryssna með 8,91 í aðaleinkunn. Hún hlaut 10 fyrir samstarfsvilja, 9,5 fyrir hægt tölt og 9,0 fyrir skeið, fegurð í reið og feti. Hugsýn er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Hugrökk frá Ketilsstöðum. Sýnandi og eigandi er Elin Holst. Ræktendur eru Bergur Jónsson og Olil Amble. Ungmennaflokkur. Matthías Sigurðsson og Tumi frá Jarðbrú eru efstir. Ljósmynd/Mystery.horses/Þórhildur H. Gunnarsdóttir Melrós kom á eftir Melrós frá Hemlu II er í öðru sæti með 8,72 í aðaleinkunn. Melrós var sýnd af Helgu Unu Björnsdóttur en eigandi er Hrossaræktarbúið Hamarsey. Ræktandi er Vignir Siggeirsson. Faðir Melrósar er Skýr frá Skálakoti og móðir hennar Melkorka frá Hemlu II. Í þriðja sæti er Brynja frá Nýjabæ með 8,70 í aðaleinkunn, sýnd af Brynju Kristinsdóttur, en hún er jafnframt eigandi ásamt Flosa Ólafssyni, Kristjáni Fjeldsteð og Heiðu Dís Fjeldsteð sem er líka ræktandi. Faðir hennar er Gljátoppur frá Miðhrauni og móðir er Gunnrún frá Bæ 2. Hryssan Nótt frá Tjaldhólum vekur verðskuldaða athygli með 10 fyrir tölt en hún er undan Skarpi frá Kýrholti og Sýn frá Árnagerði. Hún er í áttunda sæti í sínum flokki sem sýnir hvað hryssurnar eru orðnar gífurlega góðar. Teitur Árnason sýndi en ræktandi er Guðjón Steinarsson sem er jafnframt eigandi ásamt Ragnari Rafael Guðjónssyni. Sterkir keppnisflokkar Á sunnudaginn lauk sérstakri forkeppni í unglingaflokki. Efst er Kristín Rut Jónsdóttir á Straumi frá Hofsstöðum með einkunnina 8,74. Næstur á eftir Kristínu með 8,70 var Róbert Darri Edwardsson á Rökkva frá Hólaborg með 8,70 og í þriðja sæti er Linda Guðbjörg Friðriksdóttir með sömu einkunn, 8,70, á Prins frá Ljósafossi. Í B-flokki áhugamanna eru Freydís Bergsdóttir og Hátíð frá Narfastöðum efstar, en þær hlutu 8,59 í einkunn. Keppa þær fyrir hestamannafélagið Skagfirðing. Annar er Heiður frá Eystra-Fróðholti og Hannes Sigurjónsson með 8,57 í einkunn og í þriðja sæti varð Vinur frá Sauðárkróki og Hrafnhildur Jónsdóttir með 8,55 í einkunn. Í B-flokki ungmenna eru Tumi frá Jarðbrú og Matthías Sigurðsson efstir eftir forkeppni með 8,84, Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal og Grettir frá Hólum eru í öðru sæti með 8,74 og þriðja er Ída Mekkín Hlynsdóttir á Marín frá Lækjarbrekku með 8,67. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Landsmót hestamanna 2026 Kobbi og Kórinn leiða B-flokkinn Hrefna frá Hemlu efst í flokki 4 vetra hryssna Vikoría og Þinur leiða barnaflokkinn Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hringveginum lokað á morgun „Gott verð á Breiðdalsvík“ Ljósmyndin geymir alltaf augnablik Hotel owner calls 75 eclipse booking cancellations 'vandalism' Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landverðir búa sig undir mikinn fjölda Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Ófarirnar frá 1066 ekki endurteknar Stórstjarna sem skaut á heilagar kýr Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Margt á huldu um talsmann ríkisstjórnarinnar Íslensk börn verr sett en evrópsk Gul viðvörun vegna hvassviðris í gildi Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi Nýjast á mbl.is » Dæmdur fyrir nauðgun: Lögreglan vopnaðist Hringveginum lokað á morgun „Gott verð á Breiðdalsvík“ Ljósmyndin geymir alltaf augnablik Hotel owner calls 75 eclipse booking cancellations 'vandalism' Umræðan Íbúðakaup í Evrulandi Mætti ekki setja lög andstæð regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bindur vonir við fundinn í Ankara Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB Stórstjarna sem skaut á heilagar kýr Mest lesið Í gær Í vikunni Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Andlát: Megas Brúin yfir Þjórsá lokuð Hvetur konur til að byggja upp vöðva Myndskeið: Hífðu ökumanninn úr Þjórsá Óökufær ökutæki geymd á Eiðistorgi Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Margt á huldu um talsmann ríkisstjórnarinnar Íslensk börn verr sett en evrópsk Gul viðvörun vegna hvassviðris í gildi Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Krefst uppsagnar leigusamnings Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Liggur þungt haldin á gjörgæsludeild Lögreglumenn hugsi yfir vændiskonunum Allir farþegar undirgangast læknisskoðun Segist ekki hafa afhent Watson eftirlitsskýrslur Keypti símanúmer á nokkrar milljónir á „leynistað“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Benedikt orðinn sendiherra á Nýja-Sjálandi