- What: New developments in green energy vessel project
- Impact: Potential impact on renewable energy initiatives in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 12.7.2026 | 6:59 Tvær hindranir í vegi orkuskipta Skipið heitir Energy Observer 1 (EO1) en það er endurgerð skips sem var smíðað fyrir rúmum 40 árum og með nýjum orkugjöfum. Það er fyrsta skipið sem siglir umhverfis hnöttinn knúið vetni og endurnýjanlegri orku. mbl.is/Karítas Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair Iceland H2, segir fyrirtækið þurfa að yfirstíga tvær hindranir áður en það geti hafið umfangsmikla framleiðslu á rafeldsneyti á Grundartanga. Tilefnið er heimsókn vetnisknúins rannsóknaskips á vegum Qair til Reykjavíkur. „Við þurfum fyrst að yfirstíga tvær hindranir. Annars vegar þurfum við að fá einhver af vindorkuverkefnum okkar á Íslandi samþykkt til þess að við höfum raforkuna fyrir fyrsta áfangann. Hins vegar þurfum við að ganga frá samningum um sölu á græna ammoníakinu sem við ætlum að framleiða á Grundartanga. Við höfum rætt við áhugasama kaupendur en það eru einhvern veginn allir að bíða eftir staðfestingu á því að verkefnið hefjist. Það gildir reyndar um öll ammoníaksverkefni sem eru á teikniborðinu í dag.“ Fari upp í 780 MW Að sögn Tryggva Þórs eru slíkir sölusamningar þannig forsenda þess að Qair geti fengið fjármagn til að byggja upp ammóníakverksmiðju á Grundartanga. Uppbyggingin verði í áföngum en framkvæmdin kosti um 120 milljarða króna. Samhliða muni Qair byggja upp vindorkugarða, í 30-40 milljarða króna fjárfestingu, en stefnt sé að því að framleiða ígildi 280 MW af vetni í fyrsta áfanga. Síðan sé stefnt að því að auka framleiðsluna í 780 MW en til samanburðar er Kárahnjúkavirkjun, stærsta virkjun landsins, 690 MW. Þá verða 60 MW sótt í aðra endurnýjanlega orku á Íslandi. Skipið er með tveimur skrúfum sem hvor skilar 40 kW afli. Þá hefur það 100 kWh rafhlöður og getur geymt 62 kíló af vetni (við 350 bör) sem jafngildir 2 MWh af raforku. Efnarafallinn fyrir vetnið er 70 kW og yfirborð sólarsella 202 fermetrar. Þá er skipið með tvö segl til að beisla vind. „Áætlanir okkar ganga út á að geta hafið framleiðsluna á Grundartanga árið 2032. Við erum að ljúka frumhönnun verksmiðjunnar og fram undan er lokahönnun sem getur tekið þrjú ár og svo tekur við þriggja ára uppbygging. Hugmyndin er að byggja þetta fyrst og fremst á útflutningi til að byrja með, til að geta byggt upp starfsemina, og að síðan komi íslenskir kaupendur í tímans rás. Þannig að í framtíðinni verðum við fyrst og fremst að framleiða fyrir íslenska aðila.“ Raforkuverð vegur þungt Mun verð á ammóníakinu lækka eftir því sem framleiðslan skalast upp eða mun verðið verða fast? „Verðið mun lækka með aukinni framleiðslu. Hins vegar eru 70-75% af kostnaðinum við að framleiða ammoníak bundin í rafmagni. Því mun ammoníakverðið ráðast mjög af raforkuverði. Nú erum við að glíma við samkeppni frá gagnaverum sem eru reiðubúin að greiða mjög hátt verð fyrir orkuna til að geta hafið starfsemi hér. Við eigum hins vegar von á því að það muni breytast á næstu árum.“ Hvers vegna? „Vegna þess að það er eðli tæknifyrirtækja að vera tilbúin til þess að borga nánast hvað sem er í byrjun til þess að fá sem mesta markaðshlutdeild, sama hvort þau tapa peningum eða ekki. Síðan kemur að því að fjárfestar fara að gera kröfu um hagnað af starfseminni og þá heltast viðkvæmustu fyrirtækin úr lestinni og eftir sitja fáein fyrirtæki, eins og við höfum séð svo oft áður í tæknigeiranum.“ Tryggvi Þór ávarpar gesti. Bénédicte Gallon var síðan með kynningu á skipinu Energy Observer 1 og var gestum svo boðið um borð. Þannig að færri gagnaver muni bjóða í orkuna? „Já. Menn munu horfa miklu meira á rekstrarforsendurnar en gert er núna.“ Þannig að uppbygging gagnavera er á vissan hátt að tefja orkuskipti á Íslandi, þar með talið á sjó? „Já, akkúrat.“ Þrýst á orkuskipti Hvers vegna ættu erlendir aðilar að kaupa af ykkur ammóníak til að knýja skipakost sinn? „Það eru gerðar sífellt strangari kröfur um kolefnishlutleysi í skipasamgöngum. Til dæmis setti Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) fram róttækar tillögur í fyrra um hvernig ná mætti kolefnishlutleysi í samgöngum fyrir 2040 en Bandaríkjamenn stóðu í veginum. Hins vegar er talið að draga muni til tíðinda hjá stofnuninni í haust og Evrópubúar og Asíumenn ganga harðar fram gegn Bandaríkjamönnum en í fyrra,“ segir Tryggvi Þór. Sex eru í áhöfn áðurnefnds vetnisskips, Energy Observer 1; skipstjóri, skipaverkfræðingur, tveir sjómenn og tveir lærlingar. Tryggvi Þór og Friðjón Þórðarson hjá Qair afhenda skipstjóranum Marin Jarry fyrir miðju fyrstu sameindina af grænu vetni sem framleidd var í Hyd’Occ, stærstu vetnisframleiðslustöð Frakklands. Marin Jarry skipstjóri útskýrði, áður en kynningin á skipinu hófst á Miðbakka Reykjavíkurhafnar síðdegis á fimmtudag, að skipið væri knúið sólarorku í sólskini en þegar skýjað væri væri orka sótt í vetni um borð. Þá væru segl á skipinu en beislun vindsins spari mikla raforku. Jafnframt væri hægt að hlaða orku á rafhlöðurnar fjórar þegar skrúfan snýst en það hægi á skipinu og sé óskilvirkt. Hvað varðar vetnisframleiðsluna fari hún fyrst og fremst fram þegar skipið sé í höfn en þá nýti það sólarorku til að afsalta sjó og rafgreina vatnið svo að til falli vetni og súrefni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hélt að flúrið væri tileinkað Sjálfstæðisflokknum Tvær hindranir í vegi orkuskipta Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hvað gerir þú þegar maðurinn verður svakalega leiðinlegur? Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsókn á upptökum brunans lokið: Meta tjónið Ísland græði ekkert á aðild að ESB Ellefu mánuðir frá goslokum Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Mest lesið Í gær Í vikunni „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Með tilfinningu fyrir tölum Níu fá 125 þúsund krónur Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjálfboðaliði í meira en hálfa öld Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir Sundlaugagarður í Laugardalnum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Hélt að flúrið væri tileinkað Sjálfstæðisflokknum Tvær hindranir í vegi orkuskipta Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Stendur hjónaband Beccu Bloom á brauðfótum? Hvað gerir þú þegar maðurinn verður svakalega leiðinlegur? Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Hitinn gæti náð 25 stigum Evrópu vaxandi vandi á höndum Rannsókn á upptökum brunans lokið: Meta tjónið Mest lesið Í gær Í vikunni „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Með tilfinningu fyrir tölum Níu fá 125 þúsund krónur Gefi ekki rétta mynd af viðhorfi til dánaraðstoðar Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjálfboðaliði í meira en hálfa öld Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir Sundlaugagarður í Laugardalnum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Gyðingar opna hús í miðbænum Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið Hvetja vegfarendur á austurleið til að forðast Selfoss Sex fá 75,5 milljónir MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Sundlaugagarður í Laugardalnum Ísland græði ekkert á aðild að ESB Gular viðvaranir vegna hvassviðris Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi