Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

45% hagnaðarhlutfall Payday

Read Full Article →

Hugbúnaðarfyrirtækið Payday hagnaðist um 175 milljónir króna í fyrra, samanborið við 106 milljónir árið 2024. Rekstrartekjur jukust um 45% milli ára og námu 392 milljónum króna, samanborið við 271 milljón króna árið áður. Hagnaður sem hlutfall af tekjum var 45%. Eignir félagsins námu 458 milljónum í árslok, samanborið við 259 milljónir árið áður. Eigið fé nam 389 milljónum króna í árslok. Norska fyrirtækið Visma á ráðandi hlut í félaginu. Björn Hreiðar Björnsson er stofnandi og framkvæmdastjóri Payday. Lykiltölur / Payday 2025 2024 Tekjur 392 271 Eigið fé 389 214 Eignir 458 259 Afkoma 175 106 Í milljónum króna. Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 7. júlí.

Share this article