Dómaraákvarðanir halda áfram að tröllríða umfjöllun um HM í fótbolta. Noregur féll sem kunnugt úr leik í átta liða úrslitum í gærkvöld eftir 2-1 tap fyrir Englandi í framlengdum leik. Ekkert óeðlilegt virtist í fyrstu hafa átt sér stað þegar Jude Bellingham jafnaði í 1-1 fyrir England í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Útsendingin frá leiknum hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist og ekkert gaf annað til kynna en að markið hefði verið fullkomlega löglegt. Norðmenn eru ósáttir við dómgæslu í leik Noregs og Englands á HM í fórbolta í gær. Svo virðist sem jöfnunarmark Englendinga hefði ekki átt að standa en FIFA heldur öðru fram. „Þetta er bara ólöglegt mark,“ segir sérfræðingur Stofunnar á RÚV. En þegar leið á seinni hálfleik fór að bera á umfjöllun á erlendum netmiðlum um að markið hefði í raun ekki átt að standa. Aðdragandinn að markinu var sá að Ørjan Nyland, markvörður Noregs, tók langt útspark. Boltinn virðist fara upp í vír sem heldur uppi myndavél yfir vellinum, svokallaðri spidercam loftmyndavél. Þegar atvikið er skoðað nánar virðist sem boltinn hafi breytt um stefnu eftir útsparkið og fallið mun snarpar niður en eðlilegt væri. Boltinn lendir í svæði þar sem Morgan Gibbs-White nær honum fyrir England. Boltinn endar svo hjá Jude Bellingham, sem keyrir inn í vítateiginn og skorar jöfnunarmarkið, 1-1. Ætti að stoppa leikinn og láta boltann falla Atvikið var til umræðu í Stofunni á RÚV eftir leik. Þáttarstjórnandinn Edda Sif Pálsdóttir las þá upp útskýringu frá dómarasérfræðingi Stofunnar sem fékk spurningu um hvort þetta væri líkt og ef boltinn hefði farið í dómarann. „Þetta ætti að vera svipað. Ég myndi halda að þetta sé bolti í utanaðkomandi hlut. Þá ætti að stoppa leikinn og láta boltann falla,“ las Edda Sif upp úr skilaboðum frá dómarasérfræðingnum. Hins vegar sendi FIFA frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að skynjari í boltanum hefði ekki greint neina snertingu og því væri engin tæknileg sönnun fyrir því að boltinn hefði snert vírinn. Af þeim sökum stóð markið. Staðfesting á að geimverur séu til Gunnar Birgisson sem lýsti leiknum á RÚV, tekur þessa útskýringu FIFA ekki trúanlega. „Ef það er ekki snerting numin þarna þá er þetta kannski einhverskonar staðfesting á því að geimverur eru til,“ sagði Gunnar í Stofunni eftir leik. Gunnar bendir á að sambærilegt fordæmi sé nú þegar komið á mótinu fyrir því að mark væri dæmt af vegna þess að flaga í boltanum nam snertingu á hári leikmanns. Í 32 liða úrslitum skoraði Króatía jöfnunarmark gegn Portúgal á lokamínútunum sem hefði sent leikinn í framlengingu. En VAR dæmdi markið af vegna rangstöðu eftir að flögutæknin sýndi örlitla snertingu. Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur í Stofunni, tekur undir með Gunnari. „Við sjáum alveg að flugið á boltanum stoppar þarna. Þetta hefur gríðarleg áhrif. Þetta er bara ólöglegt mark.“ Hér má sjá umfjöllun Stofunnar um atvikið. Norðmenn eru ósáttir við dómgæslu í leik Noregs og Englands á HM í fórbolta í gær. Svo virðist sem jöfnunarmark Englendinga hefði ekki átt að standa en FIFA heldur öðru fram. „Þetta er bara ólöglegt mark,“ segir sérfræðingur Stofunnar á RÚV. Solbakken kvartaði við dómarann Eftir leikinn sagði norski landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken að bæði Nyland og leikmenn í kring hefðu séð boltann breyta um stefnu. Hann kvartaði við franska dómarann Clément Turpin í hálfleik og taldi að samkvæmt reglum hefði átt að stöðva leikinn, dómarinn að láta boltann falla á grasið og hefja leik að nýju ef boltinn hefði snert vírinn. Venjulegum leiktíma lauk með 1-1 jafntefli og Bellingham skoraði svo sigurmarkið Englendinga 2-1 í upphafi framlengingar. Noregur er því úr leik og England mætir Argentínu í undanúrslitunum á miðvikudaginn.