Norski landsliðsmaðurinn Alexander Sörloth og fjölskylda hans fengu viðbjóðsleg skilaboð á samfélagsmiðlum eftir að Noregur tapaði fyrir Englandi í átta liða úrslitum á HM í fótbolta. Flest skilaboðin virðast tengjast færi sem Noregur fékk í lok fyrri hálfleiks þegar Sörloth og Erling Braut Haaland voru tveir gegn einum varnarmanni Englands. Í stað þess að senda á Haaland valdi Sörloth að skjóta sjálfur en skotið var varið. Lena Selnes, unnusta og barnsmóðir Sörloths, birti í gær hluta þeirra umsagna sem voru skrifaðar við mynd sem hún setti inn eftir leikinn. Þar gefur að líta skilaboð á borð við: „Vertu svo vænn að fremja sjálfsmorð, fíflið þitt,“ og „Verður drepinn!“ og svo: „Ég ætla að drepa hann!“ Selnes skrifar að HM og fótbolti hafi veitt mikla gleði en um leið vakið svo mikið hatur. „Ég vil eiginlega ekki veita þessu athygli en verð að gera það eftir umsagnir eins og þessar,“ segir hún á Instagram . „Ég vona að allir hugsi aðeins meira áður en svona umsagnir eru sendar, burtséð frá aðstæðunum,“ bætti hún við. Á Instagram-síðu Sötloths sjálfs eru líka sett sífellt fleiri neikvæð skilaboð við myndir sem hann hefur deilt frá mótinu. Við eina myndina eru komnar yfir 100 þúsund umsagnir, flestar á ensku eða öðrum tungumálum en norsku. Þjálfarinn ráðleggur leikmönnum að forðast samfélagsmiðla Ståle Solbakken, þjálfari norska liðsins, ræddi þessi mál við fjölmiðla í gær, daginn eftir tapið fyrir Englandi. Hann sagði sorglegt að þetta væri staðan, að heimurinn sem við búum í væri orðinn svona. „Þess vegna segi ég við strákana að þeir eigi að forðast samfélagsmiðla, sérstaklega á svona dögum. Jafnvel þótt það hafi mest verið góðir dagar er þetta ekki staðurinn til að sækja sér orku,“ hefur norska ríkisútvarpið eftir Solbakken.