Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hleypur um allt land

Read Full Article →

Aldís Arnardóttir var nýlega ráðin framkvæmdastjóri Kalon, nýrrar rekstrareiningar innan samstæðunnar Ósa. Hún kemur til félagsins frá 66°Norður þar sem hún starfaði í rúm 14 ár, síðast í stjórnendastarfi á sviði verslunar og sölu. Hún tók formlega við starfinu 1. júní og hefur undanfarnar vikur verið að kynnast starfseminni og teyminu. Aldís hefur yfir 14 ára reynslu af rekstri, sölu og þjónustu frá 66°Norður en þar gegndi hún ýmsum stjórnendastörfum og bar meðal annars ábyrgð á verslunar- og sölustarfsemi. „Ég byrjaði hjá 66°Norður þegar ég var nýskriðin upp úr háskólanámi. Ég ætlaði mér alltaf í meira nám en fann fljótlega að vinnan hjá 66°Norður átti mjög vel við mig.“ Aldís byrjaði sem vörustjóri hjá fyrirtækinu á tímum stefnumótandi breytinga hjá 66°Norður. Hún tók einnig þátt í uppbyggingu vörumerkisins erlendis og var til að mynda með annan fótinn í Danmörku þegar fyrsta verslunin var að opna þar. „Þetta var ótrúlega skemmtileg vegferð og stórt verkefni fyrir íslenskt vörumerki að fara út fyrir landsteinana. Það var líka rökrétt skref að byrja í Danmörku enda vorum við enn hluti af Danmörku þegar 66°Norður var stofnað árið 1926.“ Hún segir að skrefið til Kalon sé eðlilegt framhald af fyrra starfi og að hún sé jafnframt spennt fyrir nýjum áherslum og verkefnum. „Það er kannski meiri áhersla á heildsölu hjá Kalon en í grunninn snúast bæði störfin um að vinna með fólki og byggja upp tengsl.“ Nánar er rætt við Aldísi í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article