Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr fram­kvæmda­stjóri Kalon

Read Full Article →

Kalon sameinar heildsölu Icepharma á sviði heilsu og íþrótta og fer með umboð fyrir fjölda þekktra vörumerkja, þar á meðal Nike, NOW, MUNA, Speedo, Curaprox og Sonett. Aldís er með yfir 14 ára reynslu af rekstri, sölu og þjónustu hjá 66°Norður. Þar gegndi hún ýmsum stjórnendastörfum og bar meðal annars ábyrgð á verslunar- og sölustarfsemi félagsins innanlands og erlendis. Á þeim tíma leiddi hún fjölbreytt verkefni á sviði rekstrar, þjónustu, mannauðsmála og stefnumótunar. „Kalon er leiðandi afl í að skapa magnandi heilsu og það eru spennandi tímar fram undan hjá fyrirtækinu. Ég tek við starfsemi sem byggir á sterkum grunni, góðum vörumerkjum og reynslumiklu starfsfólki sem þekkir markaðinn vel. Ég hlakka til að vinna með teyminu að áframhaldandi uppbyggingu og þróa starfsemina til framtíðar,“ segir Aldís, nýr framkvæmdastjóri Kalon. Ráðningin kemur á sama tíma og aukin áhersla er lögð á að þróa íþrótta- og heilsusvið Icepharma undir merkjum Kalon. Stefna félagsins er að styrkja enn frekar þjónustu við viðskiptavini, efla samstarf við vörumerkjaeigendur og styðja við áframhaldandi vöxt starfseminnar. „Aldís býr yfir víðtækri reynslu af rekstri og sölu og hefur leitt umfangsmikil verkefni á krefjandi markaði. Þekking hennar á þjónustu, teymisuppbyggingu og framkvæmd mun nýtast vel á næsta þróunarskeiði Kalon,“ segir Hörður Þórhallsson, forstjóri Ósa.

Share this article