Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þrír af hverjum fjórum umsækjendum eru frá Úkraínu

  • What: Statistics on asylum applications in 2023 show Ukraine as the top country of origin.
  • Impact: 74% of asylum seekers in first half of 2023 were from Ukraine.
Read Full Article →

Úkraínumenn eru langfjölmennastir í hópi þeirra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd það sem af er þessu ári, líkt og verið hefur síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst 2022. Fyrstu sex mánuði ársins bárust 675 umsóknir um alþjóðlega vernd. 74 prósent þeirra voru frá Úkraínubúum. Fólk frá Venesúela var næstfjölmennast (11 prósent) og þriðji fjölmennasti hópurinn kom frá Palestínu (sex prósent). Umsóknir um alþjóðlega vernd hafa aldrei verið fleiri en 2022 þegar þær voru 4.493 talsins. Þeim hefur fækkað mikið síðan þá. Umsóknirnar fyrri hluta árs eru þó fleiri en á sama tíma í fyrra þegar 605 sóttu um alþjóðlega vernd.

Share this article