Umsækjendur um alþjóðlega vernd (áður kallað hælisleitendur í lögum) voru 6.761 frá Úkraínu og 3.795 frá Venesúela árin 2019-2026 samkvæmt tölum Ríkislögreglustjóra Frá Palestínu voru 994 umsækjendur, Írak 495, Nígeríu 407, Sýrlandi 375, Sómalíu 298 og Afganistan 286. Frá Kólumbíu eru 171 umsækjandi og Íran 167. Tölurnar ná til loka júní. Umsækjendur frá MENAPT-ríkjum, þ.e. ríkjum Mið-Austurlanda, Norður-Afríku, Afganistan, Pakistan og Tyrklandi þar sem meirihluti landsmanna eru Múslimatrúar, eru samtals 2.718, eða 19,2% af heildinni. Sjá einnig Kostnaður vegna innflytjenda, Danmörk og sósíalistarnir 675 sóttu um alþjóðlega vernd fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt tilkynningu dómsmálaráðuneytisins í dag. Um 75% umsókna komu frá Úkraínu, 11% frá Venesúela og 6% frá Palestínu. 35 hafa sótt um vernd síðustu fjórtán daga. Fjöldinn er meiri en fyrstu sex mánuði síðasta árs þegar fjöldi umsækjenda voru 605.