Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óttast að Rússar reyni stigmögnun

  • What: Intelligence agencies warn of potential Russian actions against NATO countries
  • Impact: Potential threat to international security
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.7.2026 | 14:00 Óttast að Rússar reyni stigmögnun Pólskir hermenn á æfingu ásamt litháíska hernum í júní. AFP/Wojtek Radwanski Stefán Gunnar Sveinsson [email protected] Setja bókamerki Leyniþjónustur nokkurra ríkja á austurvæng Atlantshafsbandalagsins hafa varað við því síðustu vikur og mánuði að mögulegt sé að Rússar muni í haust reyna einhvers konar stigmögnun á Úkraínustríðinu með því að grípa til einhvers konar aðgerða gegn Eystrasaltsríkjunum eða Póllandi. Talsmaður lettnesku leyniþjónustunnar tjáði bandarísku sjónvarpsstöðinni Fox News í síðasta mánuði að þar hefðu menn séð vísbendingar um að Rússar væru nú að undirbúa það sem hann kallaði „hernaðarlegar ögranir“ gegn einhverju af þessum fjórum ríkjum. Frétt af mbl.is Áhættan vegna stríðsins að breiðast út Ætlað að senda skilaboð til vesturveldanna Tók hann sérstaklega fram að þær ögranir myndu ekki fela í sér vopnaða allsherjarinnrás líkt og í Úkraínu, þar sem Rússar væru þess einfaldlega vanmegnugir, en að þeir gætu reynt einhvers konar fjölþátta árásir. Nefndi hann möguleika á eldflauga- eða drónaárás frá Rússlandi, sem yrði þá ætlað að senda þau skilaboð til vesturveldanna að þau ættu að láta af hernaðarstuðningi sínum við Úkraínu eða hafa verra af. Telur lettneska leyniþjónustan eitt mesta áhyggjuefnið vera það að Pútín gæti misreiknað stöðuna, þar sem ráðgjafar hans og ráðuneyti eru ekki að veita honum réttar upplýsingar um raunveruleikann á vígvellinum. Frétt af mbl.is „NATO er að breytast“ Pólland hugsanlegt skotmark? Pólski fjölmiðillinn Onet greindi frá því í lok júní að Bandaríkjastjórn hefði varað pólsk stjórnvöld við því að Rússar væru að leggja á ráðin um slíka ögrun á pólskri grund. Var þar nefndur sá möguleiki að mikilvægir innviðir landsins yrðu fyrir eldflauga- eða drónaárás, eða jafnvel að rússneskir hermenn kynnu að fara yfir landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands. Utanríkisráðherra Póllands, Radoslaw Sikorski, staðfesti á fimmtudaginn að slíkar viðvaranir hefðu borist frá Bandaríkjastjórn, og að Pólverjar hefðu „trúverðugar heimildir“ fyrir því að Rússar ætluðu sér að beita ögrunum gegn ótilgreindum bandalagsríkjum. Sagði Sikorski að hann væri að tala opinberlega um þetta núna, til þess að vara Rússa við því að láta til skarar skríða, en áður hafði forsætisráðherrann Donald Tusk sagt um tíðindin að Pólverjar væru nú að búa sig undir alls kyns sviðsmyndir. „Ég vil ekki hræða neinn en næstu mánuðir gætu skipt sköpum, m.a. vegna breytilegs eðlis stríðsins. Þessar áhyggjur eru sérstaklega áþreifanlegar í Eystrasaltsríkjunum,“ sagði Tusk. Gætu sent hermenn Í einni sviðsmyndinni sem velt hefur var upp af heimildarmönnum Onet gætu rússneskir eða hvítrússneskir hermenn farið inn fyrir landamæri Póllands undir því yfirskini að þeir hefðu villst af leið vegna bilunar í GPS-tækjum, eða í björgunarleiðangri vegna þyrlu sem hefði hrapað. Myndu þeir þá treysta á að það yfirvarp væri nógu trúverðugt til þess að Bandaríkin myndu þrýsta á Pólverja að beita ekki hervaldi til þess að ýta hermönnunum aftur yfir landamærin, heldur frekar hefja viðræður við Rússa um brottför herliðsins þar sem ein helsta krafan gæti orðið sú að hernaðarstuðningi við Úkraínu yrði hætt. Í slíkri sviðsmynd hefðu Rússar náð bæði að veikja trúverðugleika fimmtu greinar Atlantshafssáttmálans, reka fleyg á milli Bandaríkjanna og ríkja Evrópu og skorið á eina af helstu líflínum Úkraínumanna. En er slík niðurstaða líkleg? Pólverjar hafa fyrir sitt leyti varað Rússa við því að slíkri innrás yrði svarað af fullum krafti, m.a. með heræfingum fyrr í sumar við landamæri sín. Þá munu bandarískir hermenn hafa tekið þátt í flotaæfingum á Eystrasalti fyrr á þessu ári, gagngert til þess að minna á það að árás á Eystrasaltsríkin myndi fela í sér árás á Bandaríkjamenn. Þá sagði Holger Neumann, yfirmaður þýska flughersins, í viðtali nýlega við breska dagblaðið Daily Telegraph , að Þjóðverjar myndu verja „sérhvern þumlung“ af landsvæði bandalagsins, þar á meðal Pólland, og m.a. hefja loftárásir á herstöðvar Rússa í Rússlandi. Í slíkri sviðsmynd hefði tilraun til ögrunar endað með allsherjarstríði milli Rússlands og Atlantshafsbandalagsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ Freyr í skýjunum eftir draumabyrjun Óttast að Rússar reyni stigmögnun Albert fékk matarást á Björgu eftir þessa máltíð „Við höfum sjaldan upplifað annað eins æði“ Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sögð hafa látist sólarhring áður en hún fannst Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » „Allt var brotið og peningaskápurinn galopinn“ Freyr í skýjunum eftir draumabyrjun Óttast að Rússar reyni stigmögnun Albert fékk matarást á Björgu eftir þessa máltíð „Við höfum sjaldan upplifað annað eins æði“ Umræðan Skollaleikur olíufélaganna Arfleifð sem ber að varðveita Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Sundlaugagarður í Laugardalnum Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Branson staddur á Íslandi Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Mælirinn ekki undir 18 gráður í nótt „Ansi gott álag þessa helgina“ Brotist inn í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Gular viðvaranir: Hitinn gæti náð 27 stigum Hellisheiði og Holtavörðuheiði lokað Kristrún slær í gegn í Tyrklandi og uppsker fylgjendahjörð Myndir: Sprettu upp súluna og féllu til sjávar Hjólhýsi eiga ekki að fara um Holtavörðuheiði Hitinn nálgast 27 gráðurnar Á þyrlu um landið þvert og endilagt „Íslendingar eru mikil stemningsþjóð“ Varað við sterkum hviðum og sandfoki Fjórir í fangaklefa eftir Kótelettuna MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“

Share this article