Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Bandaríkjamenn varaðir við ferðalögum til og um Mið-Austurlönd

The article describes an elevated physical security threat to U.S. interests and citizens globally due to military actions and increased regional tensions in the Middle East. The threat vector includes potential attacks on U.S. embassies, associated facilities, and maritime assets. The U.S. Department of State advises U.S. citizens outside the Middle East to reconsider travel to and within the region.
Read Full Article →

Bandaríska utanríkisráðuneytið gaf út viðvörun í nótt á X til bandarískra ríkisborgara víða um heim vegna stríðsátakanna við Íran og aukinnar spennu í Mið-Austurlöndum. Bandaríkjamenn utan Mið-Austurlanda eru hvattir til að endurskoða ferðalög til og um Mið-Austurlönd. Varað er við aukinni hættu á árásum á sendiráð eða staði sem tengjast Bandaríkjunum víða um heim. Bandaríski herinn gerði árásir 10. nóttina í röð á skotmörk Írana í nótt, meðal annars á stjórnstöðvar hersins, drónaskotstaði og loftvarnarkerfi Írana. Árás var gerð á tankskip úti fyrir ströndum Ómans í nótt. Bresk siglingarmálastofnun, The UK Maritime Trade Operations Agency , greindi frá árásinni en ekki liggur fyrir hver gerði árás á skipið. Skipið var staðsett um átta sjómílur norðaustur af Limah í Óman. Í tilkynningu frá Íranska byltingarverðinum sem greint var frá á ríkisfjölmiðli í Íran, segir að byltingarvörðurinn hafi stöðvað tvö skip sem reyndu að sigla um suðurleiðina um Hormússund. Íranski byltingarvörðurinn heldur því fram að suðurleiðin sé hættuleg sjóleið og hafa reynt að beina ferð skipa um norðurleiðina eða Íransmegin við sundið. Íranar segjast einnig hafa gert árásir á hernaðarinnviði bandaríska hersins í Barein og Kúveit.

Share this article