Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News Viðskiptablaðið

Eldsneytisbirgðir Evrópu duga í minna en 30 daga

  • What: Fuel reserves in Europe are low
  • Impact: Potential for supply disruptions due to geopolitical tensions
Read Full Article →

Birgðir af flugvélaeldsneyti í Evrópu eru nú aðeins taldar geta annað innan við 30 daga eldsneytisþörf álfunnar, samkvæmt útreikningum Reuters . Á sama tíma hefur vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og óvissa um opnun olíuflutninga um Hormússund aukið hættuna á frekari röskun framboðs. Evrópa hefur brugðist við með því að flytja inn eldsneyti frá Bandaríkjunum og Asíu, aukið framleiðslu í hreinsunarstöðvum og gengið á birgðir til að halda flugsamgöngum gangandi. Þrátt fyrir það er álfan talin berskjölduð, þá einkum Bretland, Frakkland og Þýskaland. Lokanir hreinsunarstöðva undanfarna áratugi hafa gert Evrópu háðari innflutningi frá Mið-Austurlöndum en mörg önnur svæði. Hormússund, sem áður flutti um fimmtung olíu og fljótandi jarðgass á sjó, opnaðist að hluta í júní eftir lokun vegna stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum. Í júlí hefur ástandið hins vegar versnað vegna árása beggja aðila. Samkvæmt ráðgjafarfyrirtækinu Energy Aspects gætu flugvélaeldsneytisbirgðir í Evrópu dregist saman um tæplega 600 þúsund tunnur á dag á þriðja ársfjórðungi. Til samanburðar er gert ráð fyrir að birgðastaðan aukist um 116 þúsund tunnur á dag í Bandaríkjunum og um 425 þúsund tunnur á Asíu-Kyrrahafssvæðinu. Birgðastaðan í Evrópu hljóðaði upp á 38 milljónir tunna í byrjun júní, sem jafngildir minna en 30 daga eftirspurn. Samkvæmt bráðabirgðatölum Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) voru birgðir í lok maí þó 10% meiri en ári áður og framleiðslu hreinsunarstöðva 30% meiri. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur varað við því að staðan geti versnað þegar líður á sumarið og segist tilbúin að samræma nýtingu öryggisbirgða ef þörf krefur. Evrópskar þjóðir hafa leitað að nýjum birgjum, meðal annars í Kanada, Nígeríu, Indlandi og Suður-Kóreu. Í júní nam innflutningur 673.000 tunnum á dag, sá mesti síðan í október 2025. Á Ítalíu jókst framleiðsla flugeldsneytis um 10% fyrstu fjóra mánuði ársins til að bregðast við þessum eldsneytisskorti.

Share this article