Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hátt í hundrað þúsund fögnuðu heimkomu norska landsliðsins

  • What: Norwegian national football team returns from USA
  • Impact: Public celebration in Norway
Read Full Article →

Norska karlalandsliðið í fótbolta kom til Noregs frá Bandaríkjunum á sjötta tímanum í dag. Þrátt fyrir að Norðmenn hafi tapað 2-1 fyrir Englandi í framlengdum leik í átta liða úrslitum á laugardagskvöld hefur árangurinn vakið mikið þjóðarstolt meðal Norðmanna. Fótboltaæði hefur gripið um sig í Noregi síðustu vikur og þegar leikmennirnir sneru heim í dag var þeim fagnað eins og þjóðhetjum. Við komuna til Óslóar héldu leikmennirnir beint í konungshöllina þar sem Haraldur Noregskonungur og konungsfjölskyldan tóku á móti þeim. Norska landsliðinu var fagnað sem þjóðhetjum við heimkomuna í dag eftir tap gegn Englandi á HM á laugardag. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi safnast saman fyrir framan konungshöllina í Ósló til að taka á móti liðinu. Gríðarlegur mannfjöldi hefur safnast saman fyrir framan konungshöllina í Ósló. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi verið mættir til að fagna landsliðinu. Þar tók Hákon krónprins þátt í hátíðarhöldunum og sló taktinn á trommur þegar leikmenn og stuðningsmenn framkvæmdu hinn svokallaða „víkingaróður“. Norska landsliðinu var fagnað sem þjóðhetjum við heimkomuna í dag eftir tap gegn Englandi á HM á laugardag. Talið er að hátt í hundrað þúsund manns hafi safnast saman fyrir framan konungshöllina í Ósló til að taka á móti liðinu.

Share this article