Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tók Albert átta mínútur að skora fyrsta markið

  • What: Football match result between Lazio and Udinese
  • Impact: Albert Guðmundsson scores winning goal
Read Full Article →

Lazio vann Udinese á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-2. Albert Guðmundsson kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir Lazio á 80. mínútu í stöðunni 1-1 og skoraði svo sigurmarkið átta mínútum síðar. Markalaust var í hálfleik en Jesper Karlstrom kom heimamönnum yfir á 49. mínútu. Davide Frattesi jafnaði á 75. mínútu og hann vék svo af velli fyrir Albert sem eins og áður sagði reyndist hetja Lazio. Albert var lánaður til Lazio frá Fiorentina í sumar en nokkuð algengt er á Ítalíu að leikmenn séu lánaðir fyrst áður en þeir eru síðan keyptir. Þannig var Albert fyrst á láni hjá Fiorentina frá Genoa áður en hann skipti alfarið yfir. Lazio er í þriðja sæti Serie A, efstu deildarinnar á Ítalíu, með fullt hús stiga eftir níu leiki en verri markatölu en Roma og Inter sem eru í sætunum fyrir ofan.

Share this article