- What: Investigation into possible arson in Fontainebleau forest
- Impact: 900 people evacuated due to wildfires
Frá skógareldinum í Fontainebleau-skógi.EPA / GAUTHIER BEDRIGNANS Tveir hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn frönsku lögreglunnar á upptökum mikilla skógarelda í Fontainebleau-skógi. Hann er í um sextíu kílómetra fjarlægð frá höfuðborginni París. Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands segir að nokkrir eldar hafi kviknað í skóginum á einum og sama ferkílómetranum. Það geti bent til þess að um íkveikju hafi verið að ræða. Annar hinna handteknu er 18 ára maður sem á afbrotaferil að baki. Hendur hans voru þaktar sóti og hann var með kveikjara á sér þegar hann var handtekinn, samkvæmt heimildum Le Monde . Um 900 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna eldanna sem kviknuðu á sunnudag.