Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

150 íbúar yfigáfu heimili sín vegna skógarelda

Read Full Article →

Sumarið hefur verið annasamt hjá slökkviliðsmönnum í Frakklandi. Þessir börðust við skógarelda í Fontainebleau-skóginum suður af Parísarborg 13. júlí sl.EPA / GAUTHIER BEDRIGNANS Yfir 600 slökkviliðsmenn börðust við skógarelda í Suður-Frakklandi í gær. Tíu heimili urðu eldinum að bráð og tjón varð á níu til viðbótar. Slökkviliðsmaður slasaðist í aðgerðunum, þó ekki alvarlega. Um 150 íbúar í tveimur bæjum í sveitarfélaginu Var í Provence-Alpes-Côte d'Azur-héraði yfirgáfu heimili sín í gær vegna skógareldanna sem enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum á. Gróður er mjög þurr og eldurinn breiddist hratt út í miklum og heitum vindi. Hitinn fór í 40 stig í gær og appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir mánudag vegna hitans.

Share this article