Kolfinna María Níelsdóttir var í síðasta mánuði ráðin leiðtogi markaðs- og viðburðamála hjá Drift EA. Hún bættist þar með í kjarnateymi Driftar EA sem hefur það markmið að efla frumkvöðla- og nýsköpunarumhverfi á Norðurlandi. Hún kemur til félagsins frá Eimi, félagi um bætta nýtingu auðlinda á Norðurlandi, þar sem hún leiddi markaðs- og nýsköpunarstarf en hún hefur einnig starfað sem verkefnastjóri kynningarmála hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Kolfinna hefur unnið við nýsköpunarverkefnið Norðanátt og hafði meðal annars umsjón með skipulagi Fjárfestahátíðar á Siglufirði. Hún tók einnig BA-gráðu í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri en er sjálf ættuð að austan. „Ég ólst upp á Eskifirði en þar unnu báðir foreldrar mínir í fiskvinnslu. Pabbi var á sjó og einu sinni þegar ég var átta ára fékk ég að fara með honum á frystitogara í viku. Þar vann ég niðri í lestinni og greip allt ruslið sem átti að fara út í sjó og svo fékk maður ís eftir á.“ Nánar er fjallað um Kolfinnu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .