Festi hefur gerst bakhjarl Driftar EA og bæst í hóp fyrirtækja sem styðja við uppbyggingu nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á Norðurlandi. Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastýra Driftar EA, undirrituðu samstarfssamning þess efnis á dögunum. Í fréttatilkynningu Driftar segir að stefnumótun Festi leggi ríka áherslu á nýsköpun, sjálfbæran vöxt og samfélagslega ábyrgð. Samstarfið við Drift EA endurspegli þá sýn og styðji við öflugt umhverfi fyrir nýjar hugmyndir og framtíðar verðmætasköpun á Norðurlandi. „Drift EA hefur á skömmum tíma byggt upp öflugt samfélag frumkvöðla og sprotafyrirtækja á Norðurlandi og við erum stolt af því að styðja við það starf. Við hlökkum til að fylgjast með hugmyndum og fyrirtækjum vaxa og dafna með stuðningi þessa öfluga samfélags,“ segir Ásta S. Fjeldsted , forstjóri Festi. Að sögn Sesselju Barðdal framkvæmdastýru Driftar er samstarfið mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Driftar EA og styrkir enn frekar það samfélag sem hefur orðið til í kringum frumkvöðla, sprotafyrirtæki og nýsköpun á Norðurlandi. „Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Festi í lið með Drift EA. Samstarfið sýnir að öflug fyrirtæki sjá mikilvægi þess að styðja við frumkvöðlastarf og ný fyrirtæki frá fyrstu skrefum. Við trúum því að nýsköpun og frumkvæði einstaklinga séu lykillinn að öflugu atvinnulífi og sterkari byggðum og hlökkum til að byggja áfram upp þetta umhverfi með öflugum samstarfsaðilum,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir , framkvæmdastýra Drift EA. Sjá einnig Tengja saman rótgróin fyrirtæki og frumkvöðla