Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga talsvert undir spám í Bandaríkjunum

Read Full Article →

Verðbólga í Bandaríkjunum dróst saman um 0,7 prósentustig milli maí og júní og mældist 3,5% samkvæmt nýbirtum tölum. Verðbólgumælingin var talsvert undir spám en greinendur sem tóku þátt í könnun WSJ höfðu gert ráð fyrir 3,8% verðbólgu í mánuðinum. Verðbólga í Bandaríkjunum tók að hækka umtalsvert eftir að stríðið í Íran hófst í lok febrúar. Verðbólga fór úr því að vera 2,4% í febrúar í 4,2% í maí, sem má að stórum hluta rekja til hækkandi eldsneytisverðs og orkukostnaðar. Lækkun olíuverðs í júní stuðlað að hjöðnun verðbólgunnar í síðasta mánuði. Heimsmarkaðsverð olíu hefur hins vegar rokið upp síðustu daga eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir að vopnahléi Bandaríkjanna og Írans væri lokið.

Share this article