Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga lækkar í Bandaríkjunum

Read Full Article →

Verðbólga í Bandaríkjunum hjaðnaði lítillega í júlí og mældist 3,4% á ársgrundvelli, einkum vegna lægra bensínverðs. Efnahagsleg áhrif stríðs Bandaríkjanna og Íran gera þó áfram vart við sig. Nýjar tölur bandarísku vinnumálastofnunarinnar voru í samræmi við könnun Bloomberg. Verðbólgan hafði mælst 3,5% í júní. Kjarnaverðbólga, þar sem sveiflukennt verð á matvælum og orku er undanskilið, lækkaði úr 2,6 í 2,5%. Samkvæmt Financial Times bendir það til þess að undirliggjandi verðþrýstingur sé enn hóflegur. Seðlabanki Bandaríkjanna hefur sætt vaxandi þrýstingi um að hækka vexti. Truflanir á orkuframboði vegna stríðsins hafa aukið verðbólguþrýsting sem þegar stafaði af tollum og uppgangi gervigreindar. Bensínverð, sem er einna sýnilegasta birtingarmynd verðbólgunnar fyrir bandarísk heimili, fór yfir 4,50 dali á gallon í maí þegar átökin í Íran stóðu sem hæst. Verðbólgan jókst þá í 4,2%, það mesta í þrjú ár. Bensínverð fór niður fyrir 3,80 dali í júní og byrjun júlí en hækkaði aftur þegar átökin færðust í aukana. Verðið er enn yfir fjórum dölum og gæti ýtt ágústverðbólgunni upp.

Share this article