Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hryðjuverkaákvæðið einkennist af óvissu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.7.2026 | 16:39 Hryðjuverkaákvæðið einkennist af óvissu Frá aðalmeðferð hryðjuverkamálsins í héraðsdómi. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ » Fleiri tengdar fréttir Ákvæði almennra hegningarlaga einkennist af ákveðinni óvissu og er ástæða til þess að endurskoða löggjöfina í ljósi þeirra mikilvægu hagsmuna sem slík brot beinast gegn. Þetta kemur fram í meistararitgerð sem Elva Rún Sveinsdóttir skrifaði við lagadeild Háskólans á Akureyri í vor. Í kjölfar þess að Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson voru sýknaðir af ákæru vegna hryðjuverka í júní hefur verið deilt um hvort tilefni sé til að endurskoða lögin. Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar telur tilefni til endurskoðunar en Sveinn Andri Sveinsson verjandi Sindra er því ekki sammála. Frétt af mbl.is Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Skýrara og ítarlegra í Noregi Í ritgerð sinni bar Elva Rún saman þær kröfur sem gerðar eru til saknæmis í hryðjuverkalöggjöf á Íslandi, í Noregi og í Bretlandi. Leiddi ritgerðin það í ljós að íslensk hryðjuverkalöggjöf er að verulegu leyti frábrugðin breskum rétti en líkari norskum rétti. Í norskum og íslenskum rétti er sérgreindur ásetningur, sem kallaður er hryðjuverkatilgangur, forsenda þess að hægt sé að sakfella fyrir hryðjuverk. Samkvæmt hegningarlögum hérlendis felst þetta meðal annars í því að valda almenningi verulegum ótta eða með því að veikja stjórnmálalegar, efnahagslegar eða þjóðfélagslegar undirstöður ríkisins. Elva Rún telur þó inntak hryðjuverkatilgangsins skýrara og ítarlegra í norskri löggjöf enda er þar skilgreind með nákvæmari hætti sú starfsemi sem telst til grundvallarstarfsemi samfélagsins og einnig gerð grein fyrir því hvað felst í því að valda verulegri röskun eða ótta í samfélaginu. Frétt af mbl.is Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Sérstakt tilraunaákvæði í Noregi og Bretlandi Bendir Elva Rún á að ákvæðið í íslenskum rétti hafi af þessum sökum sætt talsverðri gagnrýni, sér í lagi þar sem það sé ekki nægilega skýrt og litlar skýringar séu á inntaki þess sem telst hryðjuverkatilgangur. Sindri og Ísidór voru þó ekki ákærðir fyrir fullframin hryðjuverkabrot heldur fyrir tilraun til hryðjuverka. Í ritgerð Elvu Rúnar kemur fram að bæði Bretland og Noregur séu betur í stakk búin en Ísland til þess að bregðast við hryðjuverkum á fyrri stigum atburðarásar. Bæði í Noregi og í Bretlandi hafa sérstök tilraunaákvæði, sem takmarkast við hryðjuverk, verið lögfest og refsiábyrgð þar færð framar í atburðarásinni en almenn tilraunaákvæði heimila. Eins og áður segir telur Elva Rún tilefni til þess að skerpa á og endurskoða íslenska hryðjuverkalöggjöf og í því sambandi mætti líta til norskrar hryðjuverkalöggjafar. „Slík endurskoðun kynni að vera til þess fallin að eyða tvímælum um inntak og eðli hryðjuverkatilgangsins og tryggja að löggjöfin endurspegli með ótvíræðum hætti þá alvarlegu ógn sem af hryðjuverkum stafar,“ segir í niðurstöðukafla ritgerðarinnar. Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Óraunsannar upplýsingar frá lögreglu „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðskonan í ensku úrvalsdeildina? Hryðjuverkaákvæðið einkennist af óvissu Enska félagið kaupir framherja Helmingur líkamans stóð út úr vélinni Iceland's temperature record could be broken tomorrow Umræðan Að koma sér í form Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Smart að kaupa notaðar vörur Hitinn gæti náð 25 stigum Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Skipverjarnir játa sök Tvær stórfelldar líkamsárásir Að hluta til vegna fjármálahrunsins Andlát: Kristófer Þorleifsson Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Nýjast á mbl.is » Landsliðskonan í ensku úrvalsdeildina? Hryðjuverkaákvæðið einkennist af óvissu Enska félagið kaupir framherja Helmingur líkamans stóð út úr vélinni Iceland's temperature record could be broken tomorrow Umræðan Að koma sér í form Nú reynir á kjölfestu Íslands sem sjálfstæðs þjóðríkis Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skipverjarnir játa sök Skýr átti 46 afkvæmi á Landsmótinu Evrópu vaxandi vandi á höndum Segir að Íran verði útrýmt ef hann verður drepinn Mest lesið Í gær Í vikunni Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Slökkviliðsstjóri lætur af störfum Ísland má ekki missa af lestinni Skipverjarnir játa sök Tvær stórfelldar líkamsárásir Að hluta til vegna fjármálahrunsins Andlát: Kristófer Þorleifsson Brottfall í Evrópu hvergi meira en hér Íslendingur um skógareldana: „Hræðilega sorglegt“ Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Fuglinn hefur aldrei sést áður á Íslandi Þeir sem eiga tvo bíla ofrukkaðir Branson staddur á Íslandi Eldur í Eyjum: Allt tiltækt lið kallað út Himnastiginn málaður blár Þungar áhyggjur af fögrum fyrirheitum Bíll valt í Kömbunum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Stefnir í mesta hita ársins um helgina Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi

Share this article