Ástæðu þess að leikir Englands og Argentínu hafa orðið að hatrömmum ríg milli liðanna má finna á 9. áratugnum og alls ekki á fótboltavellinum. Ekki í byrjun að minnsta kosti. Mikill fjöldi Breta fluttist til Argentínu í lok 19. aldar. Þá var mikill uppgangur í Argentínu og evrópubúar flykktust þangað til að vinna. Fótboltinn kom með og faðir fótbolta í Argentínu telst vera Alexander Watson Hutton, skoskur kennari sem flutti til Argentínu upp úr 1880. Hann stofnaði fyrstu liðin og fyrstu deildina, sem síðar breyttist í Knattspyrnusamband Argentínu (AFA). Mörg af elstu og stærstu félögum Argentínu voru stofnuð af innflytjendum frá Bretlandseyjum. England vann báðar viðureignir liðanna á HM framan af; 3-1 1962 og 1-0 1966. Í þeim síðari var talsverður hasar og sagði Sir Alf Ramsey, þjálfari Englands, að leikmenn Argentínu væru eins og dýr og bannaði sínum leikmönnum að skiptast á treyjum við þá argentínsku. Svo greip pólitíkin inn í. Falklandseyjastríðið Árið 1982 réðist argentínski herinn á lítt þekktan eyjaklasa undan Atlantshafsströnd Argentínu; Falklandseyjar. Argentína var þarna enn undir stjórn herforingjastjórnar Leopoldo Galtieri og taldi sig eiga tilkall til eyjanna, sem Argentínubúar kalla Islas Malvinas, en Bretland hefur farið með stjórn eyjanna síðan á 18. öld. Breska stjórnin svaraði innrásinni af krafti og sendi flota sinn suður og hrakti Argentínumenn á brott frá eyjunum. 650 argentínskir hermenn létust, 255 breskir hermenn og 3 íbúar Falklandseyja. 323 argentínskir sjóliðar létust þegar kjarnorkukafbáturinn HMS Conqueror sökkti beitiskipinu General Belgrano í maí 1982. Skipið var utan lokunarsvæðis sem Bretar höfðu lýst og líta margir Argentínumenn á árásina sem stríðsglæp. Öll tengsl Argentínu og Bretlands voru rofin í kjölfar átakanna og komust ekki á að nýju fyrr en 1989. Argentína gerir enn tilkall til eyjanna. HM í Mexíkó 1986 Aðeins fjórum árum eftir átökin um Falklandseyjar mættust England og Argentína í 8-liða úrslitum HM í Mexíkó. 1986 var Argentína með Diego Maradona innan sinna raða og hann átti þennan leik svo sannarlega. Leikið var á hinum goðsagnakennda Azteca-velli í Mexíkóborg. Þar skoraði Maradona tvö eftirminnilegustu mörkin í sögu HM. Hið fyrra var „hönd guðs“ markið alræmda þegar hann sló boltann yfir Peter Shilton í marki Englands. Hið síðara er markið sem svo var valið mark aldarinnar þegar Maradona fékk boltann við miðlínu og lék á hálft enska liðið og skoraði framhjá Shilton. Maradona sjálfur sagði margsinnis að sigur Argentínu hafi verið hefnd fyrir Falklandseyjastríðið. Argentína varð heimsmeistari í kjölfarið eftir sigur á Belgíu í undanúrslitum og Vestur-Þýskalandi í úrslitum. HM í Frakklandi 1998 Tólf árum eftir leikinn í Mexíkó mættust liðin næst í Frakklandi 1998, nú í 16-liða úrslitum. Gabriel Batistuta kom Argentínu yfir úr víti og Alan Shearer jafnaði fyrir England, líka úr víti. Michael Owen kom Englandi svo yfir á 16. mínútu en í uppbótartíma jafnaði Javier Zanetti metin. Ekkert af þessum mörkum vakti neina sérstaka reiði en á 47. mínútu gerðist atvik sem hleypti öllu í bál og brand. David Beckham slengdi þá fætinum í Diego Simeone sem féll við með stæl. Beckham fékk rautt spjald og England tapaði í vítaspyrnukeppni. Enska götublaðið The Daily Mail sló upp fyrir sögninni 10 hetjuleg ljón, ein heimskur drengur . HM í Japan og Suður-Kóreu 2002 Að segja að það hafið verið eftirvænting fyrir þessum leik er vægt til orða tekið. Aðalleikararnir frá 1998 voru enn í liðunum þarna fjórum árum síðar. Nú snerist dæmið hins vegar við. England vann 1-0 og skoraði Beckham markið úr víti á 44. mínútu. Leikurinn var i riðlakeppninni og endaði England á að ná öðru sæti riðilsins þökk sé þessum sigri. Argentína hélt heim á leið eftir riðlakeppnina.