Argentína og England mættust í undanúrslitum HM karla í fótbolta í gær þar sem Argentínumenn unni 2-1 og komust í úrslitaleikinn um leið. Leikir liðanna hafa í gegnum tíðina verið mjög áhugaverðir og löndin eiga sér sögu bæði innan vallar og utan. Ríkin hafa deilt um yfirráð á Falklandseyjum, sem er eyjaklasi við Argentínu. Hér má lesa nánar um átök ríkjanna á vellinum sem og utan. Deilurnar hófust árið 1982 en standa enn yfir og Argentínumenn vilja hafa yfirráð yfir svæðinu. Bretar hafa ráðið ríkjum þar frá 18. öld. Leikmenn Argentínu drógu upp fána við leikslok í gær og á honum stóð Las Malvinas son Argentinas eða Falklandseyjar tilheyra Argentínu. Eftir leikinn sagði argentínski miðjumaðurinn Leandro Paredes að Falklandseyjastríðið sé „sorglegur hluti af okkar sögu“ og bætti við að leikurinn hefði ekki aðeins verið fótboltaleikur fyrir Argentínu. Hvað gerir FIFA? Þessi staða hefur áður komið upp því árið 2014 stilltu leikmenn argentínska liðsins sér upp með fána með sömu skilaboðum. Það var eftir leik liðsins við Slóveníu í vináttuleik 2014. Þá var argentínska knattspyrnusambandið sektað um 20.000 evrur eða tæpar þrjár milljónir íslenskra króna. Sambandið hefur ekki gefið út hvort og þá hverjir eftirmálarnir eru en þetta gæti þó verið litið alvarlegri augum í ljósi þess að fánanum var flaggað á heimsmeistaramóti og eftir leik við England. Athæfið hefur farið öfugt ofan í bresk yfirvöld sem vilja að FIFA aðhafist í málinu því pólitísk skilaboð séu bönnuð. FIFA tekur þetta að líkindum fyrir eftir mótið.