Íslenska karlalandsliðið í fótbolta keppti á HM í fótbolta 2018 og að því tilefni heimsótti Eiður Smári Guðjohnsen þær þjóðir sem Ísland mætti á mótinu. Meðal þeirra var Argentína, sem leikur einmitt í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í dag við England. Leikur Íslands og Argentínu á mótinu reyndist afar eftirminnilegur. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og þar að auki varði Hannes Þór Halldórsson víti frá Lionel Messi. Argentína mætti Frakklandi í 16-liða úrslitum 2018 þar sem Frakkar unnu og stóðu svo uppi sem sigurvegarar mótsins það ár. Eiður Smári kom víða við í heimsókn sinni til Argentínu. Hann settist niður með César Luis Menotti sem stýrði Argentínumönnum til sigurs árið 1978. Þá fór hann á æskuslóðir goðsagnarinnar Diego Maradonna og hitti fyrir stórar stjörnur úr argentísku knattspyrnusögunni. Jorge Luis Burruchaga skoraði sigurmark Argentínumanna í úrslitaleiknum á HM gegn Vestur-Þýskalandi árið 1986. Hann lýsir augnablikinu þegar hann skoraði markið. „Þetta voru gleðitár. Stundum grætur maður af sorg en þarna grétum við af óumræðilegri hamingju.“ Hér má sjá heimsókn Eiðs Smára til Argentínu 2018. Fram undan er stórleikur í undanúrslitum heimsmeistaramótsins því Argentína og England mætast í kvöld. Ísland mætti Argentínu á HM 2018 og Eiður Smári Guðjohnsen heimsótti þessa miklu knattspyrnuþjóð í þáttunum Andstæðingar Íslands. Argentína er ríkjandi heimsmeistari en England hefur einu sinni lyft bikarnum. Það var árið 1966 þegar liðið vann Vestur-Þýskaland í úrslitaleiknum. Leikur Englands og Argentínu hefst klukkan 19:00 á RÚV. Stofan verður að sjálfsögðu á sínum stað og hitar upp fyrir leikinn frá klukkan 18:30. Leikurinn verður svo gerður upp í HM-kvöldi.