Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Valgeir Örn ráðinn til Landsnets Brynjólfur Þór Guðmundsson Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti. Hann hefur störf í næsta mánuði. Valgeir Örn hefur starfað í fjölmiðlum í nærri tvo áratugi og var síðustu árin varafréttastjóri RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins. Valgeir sér um samskipti Landsnets við almenning, hagaðila og fjölmiðla auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Valgeir Örn Ragnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 2 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sjúkrahús rýmt vegna árása Bandaríkjanna Íranar saka Bandaríkjamenn um grimmdarlegar árásir eftir að rýma þurfi sjúkrahús með krabbameinssjúklingum vegna árása. Bandaríkin hafa fært árásir sínar norður eftir Íran, nær höfuðborginni Tehran. Fyrir 4 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Orkuforstjóri nýr forsætisráðherra Úkraínu Úkraínska þingið samþykkti í morgun tilnefningu Sergiys Koretsky í embætti forsætisráðherra. Uppstokkun Volodymyrs Zelensky forseta hefur mætt mikilli gagnrýni. Fyrir 43 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Almar tekur við formennsku Brynjólfur Þór Guðmundsson Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti. Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september. Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár. Almar Guðmundsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Slökkviliðsstjórinn látinn fara vegna rannsóknar á fjárreiðum slökkviliðsins Stjórn Brunavarna Árnessýslu komst að samkomulagi við slökkviliðsstjórann um starfsflok eftir að ábendingar bárust um atriði í fjármálum slökkviliðsins. Stjórnin vísaði tilteknum þáttum til rannsóknar lögreglu. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kanada Á lest í gegnum eldhafið Gróðureldar hafa logað víða í Kanada og haft áhrif á bæði samgöngur og loftgæði. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Heilsa Innkalla ídýfu vegna hveitis Fréttastofa RÚV Mjólkursamlag KS hefur innkallað nokkrar framleiðslulotur af Voga ídýfu með kryddi. Í innihaldslýsingu kemur ekki fram að ídýfan innihaldi hveiti sem er ofnæmisvaldur. Innköllunin nær yfir allar dósir af Voga ídýfu með kryddi sem eru merktar með best fyrir dagsetningar á bilinu 28. júlí til 30. október. Lotunúmerin eru 26-0744 til og með 26-1630. Fyrirtækið hvetur fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir hveiti til að henda vörunni eða skila henni í búð þar sem hún var keypt og fá endurgreitt. KS Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Hver endar með gullskóinn? Aðeins tveir leikir eru eftir af heimsmeistaramóti karla í fótbolta og því er keppnin um gullskóinn að harðna. Lionel Messi og Kylian Mbappé eru jafnir í efsta sæti með átta mörk en hvar endar skórinn? Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Vilja fella leyfi til blóðmerahalds úr gildi Tvenn íslensk og tíu erlend dýraverndarsamtök krefjast þess að atvinnuvegaráðuneytið felli úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að leyfa blóðmerahald. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Gera þáttaröð eftir bókum Lilju um Áróru Íslenskt og þýskt kvikmyndagerðarfyrirtæki hafa keypt réttinn að bókum Lilju Sigurðardóttur um Áróru. Unnið er að undirbúningi sjónvarpsþátta sem byggja á sögunum. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Hann lítur á mig og segir: myndir þú vilja giftast mér?“ Erna Geirdal skoðaði stjörnumerkjabók á unglingsárum sem átti eftir að reynast ótrúlega sannspá. Á litríkri ævi hafa tvær stórar ástir komið í líf hennar og hún giftist þeim þrisvar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Gervigreind tekur við einföldum leigubílapöntunum Gervigreindarspjallmenni svarar hluta þeirra símtala sem berast Hreyfli þessa dagana. Framkvæmdastjóri segir markmiðið að stytta biðtíma. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mótmæla brotthvarfi varnarmálaráðherrans Brottrekstur varnarmálaráðherra hefur vakið mikla óánægju í Úkraínu. Forsetinn ætlar að breyta skipan stjórnarinnar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Ár frá því síðasta eldgos hófst Níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröð hófst fyrir ári síðan. Þrjár vikur liðu þar til því lauk. Enn er landris við Svartsengi og kvikusöfnun sem líklegt þykir að endi með kvikuhlaupi eða eldgosi. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher gerði árásir víða í Íran Bandaríkjaher gerði árásir víða í Íran í gærkvöld og nótt. Loftvarnarkerfi fóru í gang í Teheran og greint var frá sprengingum í norðurhluta Írans í fyrsta sinn í þessari lotu stríðsátakanna. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Gjöf Erdogans veldur víða vandræðum Recep Taiyp Erdogan forseti Tyrklands gaf öllum þjóðarleiðtogum sem sóttu leiðtogafund NATO í Ankara áletraða skammbyssu. Þetta hefur víða kallað á ráðstafanir þar sem mörg lönd banna innflutning á slíku vopni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Hættuleg mengun af völdum skógarelda Miklir skógareldar í Kanada hafa valdið mikilli loftmengun víða í Kanada og Bandaríkjunum. Um 1,9 milljónir hektara lands hefur brunnið í Kanada sem er álíka stórt svæði og Slóvenía. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram hlýtt fyrir austan Útlit er fyrir allt að 22 stiga hita austan til í dag. Óvenju bjart verður yfir suðvesturhorninu framan af degi miðað við það sem fólk hefur mátt venjast undanfarið. Hvassast verður norðvestanlands. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starmer til fundar við Zelensky í dag Þetta verður síðasta ferð Starmers sem forsætisráðherra til Úkraínu en hann lætur af embætti á mánudag. Búist er við að hann vilji ítreka stuðning Breta við Úkraínu og að sá stuðningur haldi áfram þó að skipt verði um í brúnni í Bretlandi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar hefna varnarsamnings Úkraínu og ESB með árásum Rússar gerðu flugskeyta- og drónaárásir á Kyiv í nótt. Aðeins nokkrum klukkustundum áður undirrituðu ESB og Úkraína samning um nánari samvinnu í varnarmálum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR El Salvador Amnesty International segja handtökur og dauðsföll í fangelsum jafngilda glæpum gegn mannkyni Forseti El Salvador lýsti yfir stríði gegn glæpagengjum árið 2019 en ríkisstjórn hans hefur verið sökuð um brot á mannréttindum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hermönnum gert að láta mæla testósterón Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna tilkynnti í gær að testósterón verði mælt í hermönnum, 30 ára og eldri, í árlegri heilsufarsskoðun. Hann sagði ekkert um hvort konur í hernum yrðu látnar gangast undir sömu mælingar. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Holland 900 umframdauðsföll rakin til hitabylgjunnar Brynja Dögg Friðriksdóttir Par skýlir sér fyrir sólinni í Amsterdam. EPA / ROBIN UTRECHT Yfirvöld í Hollandi segja að yfir 900 fleiri dauðsföll hafi verið í landinu í lok júní og byrjun júlí þegar hitabylgja gekk yfir vestur Evrópu. Dánarorsök þeirra sem létust er ekki þekkt en talið er að dauðsföllin megi rekja til hitabylgjunnar. Margir hinna látnu voru 80 ára og eldri og bjuggu í suður og austur Hollandi þar sem hitinn náði 40 gráðum á sumum svæðum. Fleiri lönd í Evrópu hafa einnig greint frá hærri tíðni dauðsfalla í hitabylgjunni, líkt og Belgía, Bretland, Frakkland og Spánn. Hópur alþjóðlegra veðurfræðinga, World Weather Attribution (WWA), segir að hitabylgjan í júní hefði verið nær óhugsandi án loftslagsbreytinga. 16. júlí 2026 kl. 0:51ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Litlar líkur á hvorutveggja friði og allsherjarstríði Sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda segir ólíklegt að allsherjarstríð brjótist út við Persaflóa þrátt fyrir árásir Írana á grannríki sín. Friður sé hins vegar líka fjarlæg von á meðan Trump og Netanyahu verma sína valdastóla. 15. júlí 2026 kl. 23:19INNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Mótorhjól brann til kaldra kola á leið heim úr skoðun Nýkeypt mótorhjól eyðilagðist í bruna á Hámundarstaðarhálsi aðeins sex dögum eftir kaupin. Hjólið hafði nýlega staðist ástandsskoðun án athugasemda. Eigandinn slapp ómeiddur. 15. júlí 2026 kl. 22:44ERLENDAR FRÉTTIR Grikkland „Hann var með sætisbeltið spennt“ Eiginkona manns sem sogaðist næstum því út um glugga flugvélar á föstudag segir það hafa verið honum til happs að sætisbeltið var spennt. Maðurinn er enn á spítala í Grikklandi. 15. júlí 2026 kl. 21:42INNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Lengja opnunartíma í Salalaug á sunnudögum Sigrún Björk Hjartardóttir Frá og með 19. júlí til 27. september verður opnunartími Salalaugar lengdur á sunnudögum til kl. 22:00. Opnunartíminn lengist því um tvo tíma, en nú er opið til 20:00 í laugum Kópavogs um helgar. „Við erum að svara ákalli bæjarbúa um að lengja opnunartíma sundlauga um helgar,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs í tilkynningu á vef bæjarins. Ef vel tekst til stefnir bærinn einnig að því að lengja helgaropnun í Kópavogslaug. Breytingin er í samræmi við ákvörðun bæjarins um að bregðast við aukinni eftirspurn eftir lengri opnun sundlauga og auka þjónustu íbúa með tilraunaverkefni. Kópavogsbær 15. júlí 2026 kl. 21:32ÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: England-Argentína Argentína vann England 2-1 í spennutrylli í undanúrslitum HM í kvöld. Argentínu bíður úrslitaleikur gegn Spáni en England mætir Frakklandi í bronsleiknum. Hér er allt það helsta úr leik kvöldsins. 15. júlí 2026 kl. 21:27INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Kærleiksís til styrktar Bryndísarhlíð Hópurinn Riddarar kærleikans stendur fyrir söfnun fyrir Bryndísarhlíð, áfalla- og ofbeldismóttöku Landspítalans. Hópurinn stefnir á að safna 200 milljónum fyrir Bryndísarhlíð, ásamt