Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Forstjóri Sæbýlis til Landsnets

Read Full Article →

Vala Valþórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskipta og samfélags hjá Landsneti og kemur hún til starfa í byrjun október. Vala hefur frá árinu 2023 gegnt stöðu forstjóra Sæbýlis hf. í Grindavík sem vinnur að uppbyggingu landeldis á sæeyrum. Áður starfaði Vala við viðskiptaþróun hjá Landsvirkjun þar sem hún bar ábyrgð á tækifærasköpun væntanlegra viðskiptavina Landsvirkjunar og studdi uppbyggingu nýrra iðngreina. Þar áður starfaði hún sem rekstrarstjóri hjá 66°Norður þar sem hún stýrði innlendri smásölu félagsins. Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir í tilkynningunni að það sé mikill fengur að fá Völu til liðs við fyrirtækið. „Fjölbreytt reynsla hennar af viðskiptalífi, orkumálum og fyrirtækjarekstri fellur vel að framtíðarsýn Landsnets, sem er áreiðanlegt flutningskerfi sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins. Virkt samstarf við hagaðila er ein af okkar lykiláherslum og grundvöllur þess að byggja áfram upp samkeppnishæfa orkuinnviði sem þjóna samfélagi og atvinnulífi. Við hlökkum að taka á móti Völu.“ „Öflugir og áreiðanlegir orkuinnviðir eru ein af lykilforsendum áframhaldandi verðmætasköpunar og þróunar íslensks samfélags og verkefnin næstu árin eru bæði stór og spennandi. Ég hlakka til að vinna með öflugu fólki innan Landsnets, eiga gott og farsælt samstarf við viðskiptavini og hagaðila, sem og að leggja mitt af mörkum við þá mikilvægu uppbyggingu sem fram undan er,“ segir Vala. Vala hefur frá árinu 2023 gegnt stöðu forstjóra Sæbýlis hf. í Grindavík sem vinnur að uppbyggingu landeldis á sæeyrum.

Share this article