Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Handagangur á höfninni á Ísafirði

Read Full Article →

Fjölmennt er á Ísafirði í dag. Fjögur skemmtiferðaskip eru komin þar til hafnar með yfir sex þúsund farþega. Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri á Ísafirði, sagði líf og fjör í bænum þrátt fyrir leiðindaveður. Gylfi segir að fólk sé vel klætt og njóti alls sem Ísafjörður hefur upp á að bjóða. Handagangur á höfninni Þegar svona mörg skip koma til hafnar á sama tíma er að mörgu að huga. Fá rútustæði eru við bryggjuna og það voru ekki allir á eitt sáttir í morgun þegar sækja átti farþega í bílferð um Vestfirði. „Málið er þetta, ég kem þarna svona 5-10 sinnum á sumri að sækja fólk úr skemmtiferðaskipum og það eru bara vestfirsku fyrirtækin sem eru með bestu aðstöðuna og svo fá bara þeir að sækja fólk sem eru í áskrift að örfáum bílastæðum,“ segir Steinþór Ólafsson, rútubílstjóri. Hann var ekki sáttur við Ísfirðinga og fyrirkomulagið við höfnina. Hann hafi ekki mátt koma nálægt höfninni í morgun og þurft að leggja langt frá til að sækja sína farþega. Rútustæði takmörkuð auðlind Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóri á Ísafirði, segir að á svona dögum verði að huga að bæði farþegum og þeim sem þjónustu þá. Hafnarstarfsmenn séu allir af vilja gerðir að leysa málin: „Hérna á höfninni á Ísafirði eru rútustæði takmörkuð auðlind. Miðað við þau stæði sem eru hérna og takmarkað pláss. Við verðum að hugsa um öryggi farþegar sem eru að labba og á gönguleiðum, svo þau fari ekki út á götur eða inn á rútustæði hjá öðrum. Þetta eru svona vaxtaverkir. Bara strax kom í ljós að stæði sem voru áætluð og teiknuð eru ekki nógu mörg. Við reynum að vinna með öllum en það er lágmarkið að tala við mann þá er kannski hægt að finna lausnir áður en allt fer í háa loft.“

Share this article