Innlent | mbl | 11.8.2026 | 22:40 Undirbúningur á Ísafirði gengur vel Yfir 30 skemmtiferðaskip verða úti fyrir Vestfjörðum með yfir 50.000 farþegum. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Undirbúningur vegna almyrkvans hefur gengið vel á Ísafirði og fjölmörg verkefni hafa verið unnin síðustu vikur til að tryggja sem besta upplifun fyrir íbúa og gesti sem sækja bæinn heim. „Þetta verður sögulegur viðburður og starfsfólk Ísafjarðarbæjar er búið að vinna alla heimavinnuna til að hægt sé að njóta hans til fullnustu,“ er haft eftir Gylfa Ólafssyni bæjarstjóra í tilkynningu. Þar er sagt að íbúar hafi tekið vel við sér og fjölmargir þegar sótt sólmyrkvagleraugu sem Ísafjarðarbær hefur dreift. Gleraugun verða áfram afhent á auglýstum afhendingarstöðum á opnunartíma á meðan birgðir endast. Frétt af mbl.is „Vitum ekki hvort það koma þúsund eða tíu þúsund“ Slökkva á götuljósum yfir almyrkvann Í tilkynningunni segir að Vestfirðir séu einn af vinsælli áfangastöðum til að fylgjast með sólmyrkvanum en yfir 30 skemmtiferðaskip verða úti fyrir Vestfjörðum með yfir 50.000 farþegum. Til að skapa sem best skilyrði til að njóta almyrkvans hefur verið tryggt að slökkt verði á götulýsingu sem stýrt er af Orkubúi Vestfjarða, lýsingu á hafnarsvæðinu og á skíðasvæðinu meðan myrkvinn stendur yfir, þar sem því verður við komið. „Með þessu er dregið úr ljósmengun og upplifun gesta og íbúa bætt. Hvetjum við íbúa sem eru með ljósnema á lýsingu að slökkva á þeim á morgun.“ Frétt af mbl.is Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Aukin aðsókn á tjaldsvæði Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar hefur komið fyrir ferðasalernum á safnstöðum og unnið að öðrum nauðsynlegum undirbúningi til að taka á móti auknum fjölda gesta. Aðsókn á tjaldsvæði sveitarfélagsins hefur aukist jafnt og þétt og má búast við að tjaldsvæðið á Ísafirði fyllist fyrst. „Gestir sem hyggjast gista þar eru því hvattir til að mæta tímanlega. Enn er gott pláss á tjaldsvæðunum á Flateyri og Þingeyri. Ekki er hægt að taka frá tjaldstæði fyrir fram og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.“ Frétt af mbl.is Slökkva á ljósastaurum og loka götum Íbúar hvattir til að fylgjast með umferð Vegagerðin sér um umferðarstýringu og vegalokanir þar sem þess gerist þörf. Gestir og íbúar eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um umferð og færð áður en lagt er af stað og fylgjast með uppfærðum upplýsingum jafnóðum. „Ísafjarðarbær hvetur íbúa til að njóta þess að vera á einum besta stað landsins til að upplifa almyrkvann. Tökum vel á móti gestum sem vilja njóta almyrkvans á Vestfjörðum.“ Nánari upplýsingar um almyrkvann, safnstaði og gagnlega tengla má finna á upplýsingasíðu Ísafjarðarbæjar . Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Undirbúningur á Ísafirði gengur vel Lét sig hverfa frá samfélagsmiðlum Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Hera bætti Íslandsmetið aftur Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Mest lesið Í gær Í vikunni Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný „Tjónið er altjón“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þjófur réðst á Jönu með piparúða: „Ég fríkaði út“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps Nýjast á mbl.is » Undirbúningur á Ísafirði gengur vel Lét sig hverfa frá samfélagsmiðlum Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 „Líkaði það svo vel að þau fóru aldrei“ Hera bætti Íslandsmetið aftur Umræðan Staðreyndir þurfa ekki að vera þægilegar Hvers vegna er ríkisstjórnin ekki að gera neitt? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Upplýsingaóreiða undir fölsku flaggi Röngum leiðbeiningum yfirvalda eytt af island.is Endurtaka tilraun sem sannaði Einstein Mest lesið Í gær Í vikunni Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Tekinn hraustlegum tökum í Gnoðarvogi „Þetta verður algjört skrímsli“ Vilja hægri beygju og framhjáhlaup á ný „Tjónið er altjón“ Kominn með nóg af „gagnslausu umburðarlyndi“ Þjófur réðst á Jönu með piparúða: „Ég fríkaði út“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Loka húsnæðinu vegna myglu Fjölmargir lent í tjóni: Vegurinn eitt holuvíti Myndskeið: Kviknaði í bílnum um leið og hún slökkti Reif límmiða af heyrúllu og krotaði „Já til að sjá“ Vinsæll veitingastaður leitar að nýju húsnæði Segir upplýsingar yfirvalda um sólmyrkvann rangar Andlát: Wilhelm Wessman Leita ferðamanna sem skildu son sinn eftir Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Fleiri en einn í haldi vegna manndráps