Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tvennt dæmt fyrir kókaínsmygl Brynjólfur Þór Guðmundsson Karl og kona frá Póllandi voru í gær dæmd til fangelsisvistar fyrir tilraun til að smygla tæplega hálfu kílói af kókaíni til landsins. Smyglið uppgötvaðist þegar fólkið kom til Keflavíkurflugvallar frá Katowice í Póllandi. Bæði voru þau með efnin falin inni á sér. Karlmaðurinn fékk átta mánaða fangelsisdóm og konan sex mánuði. Fólkið átti efnin ekki heldur tók að sér að smygla þeim gegn greiðslu. Fólkið var sakfellt í Héraðsdómi Reykjaness. Ruv.is / Anton Brink Fyrir 23 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hálendisvakt Landsbjargar stendur vaktina Hálendisvakt slysavarnarfélagsins Landsbjargar stendur vaktina á hálendinu í sumar. Vaktin sinnir ýmsum verkefnum og segir verkefnastjóri Landsbjargar vel hafa gengið að manna vaktirnar. Fyrir 38 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Eldgos við Sundhnúksgíga „Eitt sem er alveg hægt að slá föstu er að þessum umbrotum er ekki lokið“ Eitt ár er liðið frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Jarðeðlisfræðingur segir ljóst að eldsumbrotunum á Reykjanesi sé ekki lokið. Alls hefur gosið 12 sinnum á svæðinu frá árinu 2021. Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Prótein popp innkallað Fréttastofa RÚV Iðnmark hefur innkallað þrjár framleiðslulotur af Stjörnu prótein poppi vegna þess að mjólk var ekki gefin upp í innihaldslista á umbúðum. Loturnar sem eru innkallaðar eru með dagsetningarnar 03.11.26, 20.10.26 og 05.10.26. Matvælastofnun varar fólk með ofnæmi eða óþol fyrir mjólk við poppinu og hvetur það til að henda því eða skila inn gegn endurgreiðslu. Iðnmark innkallaði framleiðsluloturnar þrjár í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Fyrir 50 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía 32 sakfelldir vegna brúar sem hrundi í Genóa Yfirmaður fyrirtækisins sem rak brú í Genóa sem hrundi 2018 var í dag dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. 32 af 57 sakborningum voru sakfelldir. 43 fórust þegar brúin hrundi. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Sungið um BDSM, lækna og svín Það er af nógu að taka í Undiröldunni þessa vikuna þar sem Kaktus Einarsson ásamt John Grant, Kristján Saenz ásamt Bríet, 666° Norður og fleiri mæta með nýja tónlist. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Ísafjarðarbær Hnútukast á bryggjunni á Ísafirði Það gekk á ýmsu á bryggjunni á Ísafirði í morgun þegar rúmlega sex þúsund farþegar á fjórum skemmtiferðaskipum komu í land. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL List „Mjóddin er tignarleg eins og álfahöll“ Menning er það sem gerir okkur mennsk segir leikstjóri Götuleikhúss Hins hússins. Götuleikhúsið hefur glatt borgarbúa með ýmis konar furðulegum uppákomum í sumar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Ungir bændur andvígir þjóðaratkvæðagreiðslu og ESB Samtök ungra bænda taka skýra og einróma afstöðu gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið og þar með gegn frekari aðildarviðræðum og þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ákærður fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli Karlmaður sætir ákæru fyrir að svipta konu frelsi klukkustundum saman, nauðga henni og beita hana miklu ofbeldi. Konan krefst 15 milljóna í bætur. Hann er jafnframt ákærður fyrir hættulega árás á aðra konu. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Kaldhæðni örlaganna – þegar Messi baðaði Yamal Spánn og Argentína mætast í úrslitum heimsmeistarkeppninnar á sunnudaginn. Lionel Messi og Lamine Yamal mætast þá í fyrsta skipti á vellinum en fyrir 19 árum mættust þeir á öðrum og heldur óvanalegum vettvangi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ólafur Þór verður næsti sveitarstjóri Skagastrandar Brynjólfur Þór Guðmundsson Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að ráða Ólaf Þór Ólafsson í embætti sveitarstjóra. Hann tekur við starfinu 1. ágúst. Ólafur hefur mikla reynslu af sveitarstjórnarstörfum. Hann var sveitarstjóri í Reykhólahreppi og Tálknafjarðarhreppi auk þess að sitja í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar þar sem hann var forseti bæjarstjórnar. 16 sóttu um starfið og varð Ólafur Þór fyrir valinu. Formlega verður gengið frá ráðningunni á fundi sveitarstjórnar í næstu viku. Ólafur Þór Ólafsson. RÚV / Jóhannes Jónsson Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Sjúkrahús rýmt vegna árása Bandaríkjanna Íranar saka Bandaríkjamenn um grimmdarlegar árásir eftir að rýma þurfi sjúkrahús með krabbameinssjúklingum vegna árása. Bandaríkin hafa fært árásir sínar norður eftir Íran, nær höfuðborginni Tehran. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Orkuforstjóri nýr forsætisráðherra Úkraínu Úkraínska þingið samþykkti í morgun tilnefningu Sergiys Koretsky í embætti forsætisráðherra. Uppstokkun Volodymyrs Zelensky forseta hefur mætt mikilli gagnrýni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Valgeir Örn ráðinn til Landsnets Brynjólfur Þór Guðmundsson Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti. Hann hefur störf í næsta mánuði. Valgeir Örn hefur starfað í fjölmiðlum í nærri tvo áratugi og var síðustu árin varafréttastjóri RÚV og einn umsjónarmanna Silfursins. Valgeir sér um samskipti Landsnets við almenning, hagaðila og fjölmiðla auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks. Valgeir Örn Ragnarsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Almar tekur við formennsku Brynjólfur Þór Guðmundsson Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti. Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september. Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár. Almar Guðmundsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Slökkviliðsstjórinn látinn fara vegna rannsóknar á fjárreiðum slökkviliðsins Stjórn Brunavarna Árnessýslu komst að samkomulagi við slökkviliðsstjórann um starfsflok eftir að ábendingar bárust um atriði í fjármálum slökkviliðsins. Stjórnin vísaði tilteknum þáttum til rannsóknar lögreglu. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Á lest í gegnum eldhafið Gróðureldar hafa logað víða í Kanada og haft áhrif á bæði samgöngur og loftgæði. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilsa Innkalla ídýfu vegna hveitis Fréttastofa RÚV Mjólkursamlag KS hefur innkallað nokkrar framleiðslulotur af Voga ídýfu með kryddi. Í innihaldslýsingu kemur ekki fram að ídýfan innihaldi hveiti sem er ofnæmisvaldur. Innköllunin nær yfir allar dósir af Voga ídýfu með kryddi sem eru merktar með best fyrir dagsetningar á bilinu 28. júlí til 30. október. Lotunúmerin eru 26-0744 til og með 26-1630. Fyrirtækið hvetur fólk sem hefur ofnæmi eða óþol fyrir hveiti til að henda vörunni eða skila henni í búð þar sem hún var keypt og fá endurgreitt. KS Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Hver endar með gullskóinn? Aðeins tveir leikir eru eftir af heimsmeistaramóti karla í fótbolta og því er keppnin um gullskóinn að harðna. Lionel Messi og Kylian Mbappé eru jafnir í efsta sæti með átta mörk en hvar endar skórinn? Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Vilja fella leyfi til blóðmerahalds úr gildi Tvenn íslensk og tíu erlend dýraverndarsamtök krefjast þess að atvinnuvegaráðuneytið felli úr gildi ákvörðun Matvælastofnunar um að leyfa blóðmerahald. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Gera þáttaröð eftir bókum Lilju um Áróru Íslenskt og þýskt kvikmyndagerðarfyrirtæki hafa keypt réttinn að bókum Lilju Sigurðardóttur um Áróru. Unnið er að undirbúningi sjónvarpsþátta sem byggja á sögunum. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Hann lítur á mig og segir: myndir þú vilja giftast mér?“ Erna Geirdal skoðaði stjörnumerkjabók á unglingsárum sem átti eftir að reynast ótrúlega sannspá. Á litríkri ævi hafa tvær stórar ástir komið í líf hennar og hún giftist þeim þrisvar. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Gervigreind tekur við einföldum leigubílapöntunum Gervigreindarspjallmenni svarar hluta þeirra símtala sem berast Hreyfli þessa dagana. Framkvæmdastjóri segir markmiðið að stytta biðtíma. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Mótmæla brotthvarfi varnarmálaráðherrans Brottrekstur varnarmálaráðherra hefur vakið mikla óánægju í Úkraínu. Forsetinn ætlar að breyta skipan stjórnarinnar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Ár frá því síðasta eldgos hófst Níunda eldgosið á Sundhnúksgígaröð hófst fyrir ári síðan. Þrjár vikur liðu þar til því lauk. Enn er landris við Svartsengi og kvikusöfnun sem líklegt þykir að endi með kvikuhlaupi eða eldgosi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bandaríkjaher gerði árásir víða í Íran Bandaríkjaher gerði árásir víða í Íran í gærkvöld og nótt. Loftvarnarkerfi fóru í gang í Teheran og greint var frá sprengingum í norðurhluta Írans í fyrsta sinn í þessari lotu stríðsátakanna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Gjöf Erdogans veldur víða vandræðum Recep Taiyp Erdogan forseti Tyrklands gaf öllum þjóðarleiðtogum sem sóttu leiðtogafund NATO í Ankara áletraða skammbyssu. Þetta hefur víða kallað á ráðstafanir þar sem mörg lönd banna innflutning á slíku vopni. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Hættuleg mengun af völdum skógarelda Miklir skógareldar í Kanada hafa valdið mikilli loftmengun víða í Kanada og Bandaríkjunum. Um 1,9 milljónir hektara lands hefur brunnið í Kanada sem er álíka stórt svæði og Slóvenía. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Áfram hlýtt fyrir austan Útlit er fyrir allt að 22 stiga hita austan til í dag. Óvenju bjart verður yfir suðvesturhorninu framan af degi