- What: Discussion on Iceland's potential as a data center hub
- Impact: IT and telecom industry professionals
„Gervigreindarfyrirtæki og gagnaver munu leita til Íslands. Það er að fara að gerast og Nova er eitt af þeim fyrirtækjum sem geta boðið þeim allt sem þau þurfa. Stofnnetið, afkastagetan og tengingarnar eru til staðar," segir Ólafur Magnússon, tæknistjóra Nova. Hann segir stofnnet Nova búa yfir mikilli afkastagetu. Kerfið sé hannað til að þola verulegan vöxt án þess að krafist sé stórra nýfjárfestinga til að mæta aukinni eftirspurn. „Þetta þýðir að Nova getur brugðist við kröfum markaðarins á mjög stuttum tíma.“ Nova er tengt við alla sæstrengi sem tengja Ísland við Evrópu. Farice er þar að auki að undirbúa nýjan sæstreng, AUÐUR, sem liggja mun frá suðurströnd Íslands til Glasgow eða Edinborgar í Skotlandi, með 16–24 ljósleiðarapör og mikilli afkastagetu að sögn Ólafs. „Þetta mun enn frekar styrkja tengingar Íslands við Evrópu, þar sem allir helstu skýjaþjónustuaðilar bjóða þjónustu sína. Nova er tengt við öll helstu gagnaver landsins og getur þannig boðið öflugar gagnatengingar, bæði inn á íslenska innviði og út úr landi, á mjög samkeppnishæfu verði," segir hann. Alþjóðlegir aðilar fjárfesta hér á landi Ólafur bendir á að stofnnet Nova sé afar mikilvægt fyrir gagnaversiðnað á Íslandi. „Án traustra og afkastamikilla innlendra tenginga væri ekki hægt að nýta svo vel sæstrengina sem liggja til landsins," útskýrir Ólafur. „Íslenski gagnaversmarkaðurinn var metinn á um 425 milljónir dollara árið 2024 og því er spáð að hann nærri tvöfaldist fyrir árið 2030. Stærstu aðilarnir hér eru atNorth, Borealis og Verne. Gagnaver á Íslandi eru með þeim orkunýtnustu í heimi en þau nýta hreina orku og kalt loftslag til kælingar og þurfa því mun minni orku í rekstur en gagnaver víðast annars staðar. Stórir alþjóðlegir aðilar eru þegar farnir að fjárfesta hér m.a. bandaríska gervigreindarfyrirtækið Crusoe sem stækkaði nýlega starfsemi sína í gagnaveri atNorth og Verne samdi við breska félagið Nscale um eina stærstu gervigreindaruppsetningu í Evrópu, sem settar verður upp á þessu ári. Ofar kemur til með að vera með sólarhrings rekstrarþjónustu á þessum búnaði," segir hann. Markaðurinn að breytast Þróunin á heimsvísu er skýr og hröð að sögn Ólafs. „Fjárfesting í nýjum sæstrengjum er áætluð um 13 milljarðar Bandaríkjadala á tímabilinu 2025–2027, sem er næstum tvöföldun frá fyrra þriggja ára tímabili, þar sem Meta, Google, Amazon og Microsoft eru í fararbroddi, knúin af þörfum gervigreindar. Hlutdeild hyperscale-fyrirtækja í alþjóðlegri sæstrengsgetu hefur aukist úr 10% í 71% á síðasta áratug. Ísland er í einstakri stöðu með endurnýjanlega orku, náttúrulega kælingu og öflugar tengingar við Evrópu, sem gera landið að mjög eftirsóttum valkosti. Norðurlöndin eru að festa sig í sessi sem samhæfð miðstöð stafrænna innviða. Helstu gagnaversmarkaðir Evrópu — Frankfurt, London, Amsterdam og París — eru farnir að mettast vegna orkuskorts og tafa á tengingum við raforkukerfi, sem skapar ný tækifæri fyrir fjárfesta.