- What: NVIDIA executives visit Icelandic data center
- Impact: Discussion on future of AI infrastructure in Iceland
Viðskipti | Morgunblaðið | 20.6.2026 | 12:45 Ísland fái gervigreindargagnaver Raj Mirpuri og Mark Hamilton sjá mikla möguleika á Íslandi fyrir rekstur gervigreindarverksmiðja. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Margir vilja læra á Claude Spáir aukinni þörf fyrir starfsfólk „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Funda eftir að Hvíta húsið stöðvaði uppfærslu Gervigreindin geti gengið frá kaupum » Fleiri tengdar fréttir Tveir háttsettir stjórnendur á sviði gagnaversinnviðaverkefna örgjörvarisans NVIDIA, Marc Hamilton og Raj Mirpuri, heimsóttu íslenska gagnaversfyrirtækið Borealis Data Center í vikunni og funduðu einnig með forsætisráðuneytinu og öðrum ráðamönnum. Tilefni heimsóknarinnar var að efla samstarf fyrirtækjanna og ræða hlutverk og möguleika Íslands í heimi gervigreindar til framtíðar en NVIDIA sér Ísland sem raunhæfan stað fyrir næstu kynslóð gervigreindarinnviða. Í samtali við Morgunblaðið lýstu þeir möguleikum Íslands á að nýta hagstætt loftslag og hreina orku í uppbyggingu gervigreindargagnavera (GGV/e. AI factories). Þau skapi mikil verðmæti sem felist í að framleiða nýja tegund rafrænnar vöru sem hægt sé að flytja út í gegnum gagnatengingar hvert sem er í heiminum. 60% af heildartekjum Mirpuri ber ábyrgð á sölu til stórfyrirtækja, skýjaþjónustuaðila og AI-innviðaverkefna á heimsvísu, eða 60% af heildartekjum NVIDIA. Hamilton er einn af helstu talsmönnum NVIDIA um GGV, gagnaver og innleiðingu gervigreindar hjá fyrirtækjum. NVIDIA er með yfirburðastöðu á markaði fyrir AI-örgjörva með yfir 80% markaðshlutdeild í örgjörvum sem notaðir eru til að þjálfa og keyra stór gervigreindarforrit. Fyrirtækið er langverðmætasta fyrirtæki á hlutabréfamarkaði í heiminum í dag með 5,1 billjónar dala markaðsvirði. Þeir Mirpuri og Hamilton segja að Ísland sé einstaklega vel í stakk búið til að verða mikilvægur staður fyrir gervigreindarinnviði í Evrópu og bæta við að GGV séu að verða jafn mikilvæg fyrir hagkerfi þjóða og raforkuver, hafnir og fjarskiptakerfi. „Alls staðar í heiminum er áhugi á að tileinka sér gervigreind,“ segja Hamilton og Mirpuri sem eiga í samskiptum við aðila vítt og breitt. „Hún er mjög frábrugðin upplýsingatækni fortíðarinnar. Gervigreind nútímans hjálpar þér að fanga færni fólks og aðstoðar við að sjálfvirknivæða þá færni,“ segir Hamilton. „Þessi bylting er rétt að byrja.“ Þeir Mirpuri segja að hver Íslendingur gæti til dæmis verið með tíu gervigreindaraðstoðarmenn (e. agents) sér til aðstoðar og spyrja hvað það gæti þýtt fyrir framtíð landsins. „Það þýðir að fámenn þjóð getur margfaldað afköst sín með því að innleiða þessa tækni. Það myndi gefa ykkur byr undir báða vængi og gera ykkur auðveldara að keppa á alþjóðavettvangi.“ Þeir segja að heimurinn þurfi meiri hugbúnað. „Það er svo margt sem á eftir að sjálfvirknivæða. Það hafa einfaldlega ekki verið til nógu margir forritarar hingað til.“ Auka fjölbreytni Þeir benda á að Ísland búi yfir mikilli raforku og það séu tækifæri til að auka fjölbreytni í hagkerfinu með nýjum tegundum orkuháðs iðnaðar eins og gagnaverum. „Ísland býr yfir mörgum af þeim eiginleikum sem þróunaraðilar gervigreindarinnviða leita eftir: svölu loftslagi sem dregur úr orkuþörf til reksturs verkefna, tækifærum á sviði endurnýjanlegrar orku, hæfu vinnuafli og langtímastöðugleika,“ segir Mirpuri. Hann segir að munurinn á gagnaveri sem geymi gögn og GGV sé að gagnaverið geymi t.d. ljósmynd af laxi en GGV búi til nýja mynd af honum sem fólk vill borga fyrir. „Að búa til nýja mynd er flóknara en að ná í gamla mynd á hörðum diski og mun verðmætari vara. Gervigreindarverksmiðja tekur inn hráefni. Hún notar gervigreindarlíkan eins og t.d. ChatGPT eða það sem NVIDIA smíðar og veitir aðgang að.“ Mirpuri segir að þetta snúist ekki bara um að styðja við íslenskt efnahaglíf. „Þetta snýst um að flytja út greindina sem framleidd er í GGV. Gögnin verða hér og þið verðið hreinir útflytjendur upplýsinga.“ Hamilton bendir á að tækifærin til að skapa aukin verðmæti í þessum iðnaði séu mikil. „Þegar við smíðum skjákort og seljum til skýjaþjónustuarms Amazon (AWS) fyrir einn dal geta þeir strax skapað aukin verðmæti upp á fjóra eða fimm dali með því að leigja aðilum aðgang að afkastagetu þess og þeir eru oftast búnir að selja þá þjónustu áður en við afhendum þeim skjákortið. Ef aðili útbýr síðan þróaðri vöru með því að bæta við hugbúnaði sem byggist á gervigreind og selja aðgang að honum getur þessi dalur skilað 50 dölum í stað fimm yfir líftíma vörunnar, sem er óheyrð framlegð. Bílar tapa t.d. verðgildi strax og þeir fara af færibandinu en þegar kemur að skjákortum þá hefur verðgildi þeirra frekar verið að aukast með tímanum.“ Um gervigreindarlíkanið sem NVIDIA getur útvegað segir Hamilton að fyrirtækið smíði mörg slík líkön og gefi út sem opinn hugbúnað. Þau séu í notkun um allan heim. „Það kostar 10-20 milljarða bandaríkjadala, eða 1.300-2.600 milljarða íslenskra króna, að þróa gervigreindarlíkan. Það er ekkert vit fyrir Ísland kostnaðarlega séð að leggja í slíka þróun. Því væri okkar líkan góður kostur. Hluti af viðskiptamódeli NVIDIA er að auka eftirspurn með því að fjárfesta fyrir tugi milljarða dollara í gervigreindarlíkönum og gefa þeim sem vilja nota þau aðgang að upplýsingum svo þeir geti skapað sín eigin líkön.“ Spurðir nánar um dagskrána á Íslandi segir Mirpuri að Ísland hafi mikinn aðgang að náttúruauðlindum og að áframhaldandi þróun í nýtingu þeirra geti skapað mikinn ávinning. Þeir vilji ræða við Borealis um frekari uppbyggingu GGV hér á landi. Hamilton segir teymi sitt hjá Nvidia geta hjálpað til við uppbygginguna. „Alla jafna tekur 9-12 mánuði að byggja gagnaver en teymi Marcs getur reist GGV á 90 dögum. Það eru yfir 100 GGV reistar á hverjum ársfjórðungi í heiminum með milljónum örgjörva,“ segir Hamilton að endingu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Gervigreind Margir vilja læra á Claude Spáir aukinni þörf fyrir starfsfólk „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Funda eftir að Hvíta húsið stöðvaði uppfærslu Gervigreindin geti gengið frá kaupum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þjóðskáldið og skosk þjóðernisstefna Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Fleira áhugavert Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Lestarstjóri fórst og 11 slösuðust alvarlega „Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Nova gengur frá kaupum á Ofar Eignamiðlun festi kaup á BÚUM VEL Margir vilja læra á Claude Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Ósar kaupa Röntgen Domus LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Margir vilja læra á Claude LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Ósar kaupa Röntgen Domus Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Eignamiðlun festi kaup á BÚUM VEL Nova gengur frá kaupum á Ofar Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Margir vilja læra á Claude Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi HM-treyjurnar seldust upp Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Ósar kaupa Röntgen Domus Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Útboð SpaceX stærra en áætlað var Pistlar » Sigurður Már Jónsson Þjóðskáldið og skosk þjóðernisstefna Sigurður Már Jónsson Sjálfstæðir Skotar heimsóttir Fleira áhugavert Meðal fremstu þjóða í atvinnumálum Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Lestarstjóri fórst og 11 slösuðust alvarlega Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Nova gengur frá kaupum á Ofar Eignamiðlun festi kaup á BÚUM VEL Margir vilja læra á Claude Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Icelandic Glacial opnar miðstöð í París Ósar kaupa Röntgen Domus LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Margir vilja læra á Claude LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Ósar kaupa Röntgen Domus Rakel nýr framkvæmdastjóri Stefnumótunar og menningar Eignamiðlun festi kaup á BÚUM VEL Nova gengur frá kaupum á Ofar Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi Um 4,6 milljarða halli á rekstri borgarinnar Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki Bláa lónið og Arctic Adventures vilja sameinast Margir vilja læra á Claude Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskipi HM-treyjurnar seldust upp Icelandic Glacial verður alþjóðlegt Ósar kaupa Röntgen Domus Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki LS Retail kaupir tvö alþjóðleg ráðgjafafyrirtæki Hildur Soffía nýr m