Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
LOW News Mbl Innlent

Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma

  • What: A virus is spreading in Iceland with unusual timing.
  • Impact: It affects children and has multiple transmission routes.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2026 | 7:45 Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Veiran er bráðsmitandi og hefur margar smitleiðir. Hún getur til dæmis smitast með hægðum í allt að sex vikur eftir að einkenni hverfa. mbl.is/Ómar Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Hand-, fót- og munnsjúkdómur, sem gjarnan er kallaður gin- og klaufaveiki í daglegu tali, lætur nú á sér kræla í auknum mæli, sérstaklega á meðal barna. Að sögn Matthildar Elínar Víðisdóttur, fagstjóra hjúkrunar á Upplýsingamiðstöð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hefur Upplýsingamiðstöðin, sem sinnir símaráðgjöf vegna veikinda í síma 1700, fundið vel fyrir auknum fjölda tilfella. „Við höfum rætt hér innanhúss að það er rosalega mikið um þetta og þá svæsnari tilfelli en áður,“ segir Matthildur og bætir við: „Við höfum séð þetta frá því í byrjun maí og einhvern veginn er ekkert lát á.“ Sérstakur árstími Um er að ræða veirusjúkdóm sem leggst helst á ung börn þó að fullorðnir geti líka smitast. Samkvæmt upplýsingum Heilsuveru er helsta birtingarmynd hans almennur slappleiki, hálssærindi, hiti, kyngingarerfiðleikar og svo það sem einkennir sýkinguna hvað mest: blöðruútbrot á höndum, fótum og nára og sár í munni og koki. Sýkingin er oftast mild og ganga veikindin yfirleitt yfir á 7-10 dögum. Algengt er að sjúkdómurinn gangi í litlum faröldrum, einkum á haustin, og því vekur tímasetningin athygli. „Þetta er sérstakur árstími. Þetta er yfirleitt á haustin eða á veturna en núna hefur þetta verið í gangi frá því í vor og er enn greinilega í fullum gangi,“ segir Matthildur. Útbrotin svæsin Eins og fram hefur komið eru útbrot á líkama og í munni einkennandi fyrir sjúkdóminn og samkvæmt Heilsuveru byggir greining veirunnar á þeim. Sár myndast í munni um 1-2 dögum eftir að hiti gerir vart við sig, en þau byrja sem rauðir dílar og verða svo að blöðrum og sárum á tungu, gómi og koki. „Foreldrar þurfa að vera mjög meðvitaðir um að þau geta einmitt verið með útbrot inni í munni og verið ótrúlega aum í munninum,“ segir Matthildur. Húðútbrotin myndast oftast á höndum, iljum, við munn og við nára. Að sögn Matthildar virðast útbrotin vera ákafari en áður. „Við höfum rætt það á vaktinni að við munum ekki eftir að hafa séð þetta jafn svæsið og útbrotin virðast vera núna.“ Oft langur tími þar til einkenni koma í ljós Matthildur segir mikilvægt að halda að börnum vökva á meðan veikindin ganga yfir. „Veikindin byrja oft með slappleika og særindum í hálsi áður en útbrotin sjálf koma fram. Það er mjög mikilvægt, eins og með önnur veikindi, að halda að börnum vökva og gefa þeim hitalækkandi ef þau fá hita. Þessu fylgir líka oft lystarleysi.“ Hægt er að smitast oftar en einu sinni en að sögn Matthildar er það ekki algengt. „Flest börn fá þetta bara einu sinni og svo myndum við mótefni gegn þessu.“ Veirusýkingin smitast með snertismiti eftir beina snertingu við vessa frá nefi, hálsi, blöðrum og hægðum. Smithætta er til staðar allt frá nokkrum dögum áður en einkenni koma fram þar til útbrot eru horfin. Tími frá smiti þar til einkenni koma fram er 3-8 dagar samkvæmt upplýsingum frá Heilsuveru. Einstaka sinnum getur veiran valdið heilahimnubólgu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Skilin eftir sex ára hjónaband Þetta kosta miðar á úrslitaleik HM Aðsend grein: Samkeppni og lífskjör Sala á regnfötum gengur vel Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðvarandi vandamál í áratugi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Mikill verðmunur milli sundlauga Mest lesið Í gær Í vikunni Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Ljótt að feta í sama farveg Léttir til vestanlands eftir hádegi Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Skilin eftir sex ára hjónaband Þetta kosta miðar á úrslitaleik HM Aðsend grein: Samkeppni og lífskjör Sala á regnfötum gengur vel Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan verri áður en skýrslan var unnin Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Ekki í mínum villtustu draumum Mest lesið Í gær Í vikunni Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Ljótt að feta í sama farveg Léttir til vestanlands eftir hádegi Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article