Trump Media & Technology Group, félag Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem rekur samfélagsmiðilinn Truth Social, tapaði 238,1 milljón dala á öðrum ársfjórðungi. Á sama tímabili í fyrra nam tapið um 20 milljónum dala. Aukið tap skýrist einkum af óinnleystum gangvirðisbreytingum rafmyntaeigna félagsins. Stafrænar eignir, þar á meðal rafmyntir, lækkuðu í verði á tímabilinu frá apríl til júní. Fjárfestar forðuðust áhættusamari eignir í skugga óvissu um þróun vaxta vestanhafs, aukinnar spennu í alþjóðamálum og viðvarandi útflæðis úr fjárfestingum tengdum rafmyntum. Tekjur Trump Media jukust þó milli ára. Þær námu 1,7 milljónum dala á ársfjórðungnum, samanborið við 900 þúsund dali á sama tímabili í fyrra. Félagið reynir nú að afla nýrra tekna með Truth API, gagnaveitu sem veitir bönkum og verðbréfafyrirtækjum aðgang að færslum áhrifamikilla notenda Truth Social. Þar á meðal eru færslur Trumps, sem geta haft veruleg áhrif á alþjóðlega fjármálamarkaði. Sjá einnig Trump selur aðgengi að færslum sínum á Truth Social Fram hefur komið að Trump Media hafi rætt um að innheimta allt að 100 þúsund dali á mánuði fyrir þjónustuna. Gagnaveitan var opnuð 1. ágúst og félagið tilkynnti í gær að þegar hefðu verið undirritaðir samningar við fleiri en tíu viðskiptavini. Fleiri samstarfsaðilar væru jafnframt að bætast í hópinn. Kevin McGurn, starfandi forstjóri Trump Media, sagði nýju þjónustuna þegar farna að skila tekjum. Hann kvað félagið einnig hafa náð framförum í fyrirhuguðum samruna við TAE Technologies, sem þróar kjarnasamrunaorku. Sjá einnig Skortsalar auka stöður gegn Trump Media Með samrunanum veðjar Trump Media á aukna raforkuþörf vegna hraðrar uppbyggingar gagnavera fyrir gervigreind. Verkefnið bætist við fjölbreytt umsvif Trump-fjölskyldunnar, sem ná meðal annars til rafmynta, fasteigna og farsímaþjónustu.